Gangan hefst klukkan 13:00 og endar á Ingólfstorgi þar sem flutt verða ávörp og skemmtiatriði. Sonja Ýr Þorbergsdóttur, formaður BSRB, og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins halda ræður.
Kristján segir í samtali við fréttastofu að lögð verði mest áhersla á núverandi stöðu í landinu. Hann segir bráðavanda blasa við heimilum landsins. „Fólk er að upplifa náttúrulega mikla aukningu í útgjöldum hjá sér vegna hárrar verðbólgu og í rauninni sér ekki fyrir endann á þeirri þróun,“ segir hann.

Þá bendir Kristján að á komandi vetri verði farið í kjaraviðræður. Rýna þurfi í stöðuna og ná fram breytingum svo fólk nái endum saman. Það þurfi að vera fyrirsjáanlegur tími framundan með lágri verðbólgu og lægri vöxtum.
„Þetta eru þessi stærstu atriði sem blasa við og þar mun auðvitað skipta gríðarlegu máli hvað stjórnvöld munu gera í tengslum við þetta samtal okkar og kjarasamninga framundan. Munu þau koma inn í þetta samtal með okkur og taka þátt því í að komast á betri stað? Það er kannski það sem brennur mest á okkur í dag.“
Nóg um að vera
Að lokinni dagskrá á Ingólfstorgi bjóða verkalýðsfélög fólki í kaffi og með því. Til að mynda býður BSRB fólk velkomið í Grettisgötu 89 eftir fundinn, Efling í Valsheimilinu og VR í anddyri Laugardalshallarinnar.
Hitað verður upp fyrir kröfugönguna með skemmtiskokki og hátíðardagskrá fyrir alla fjölskylduna á Klambratúni. Jónsi í Svörtum fötum stýrir dagskránni sem hefst klukkan 11:30. Hlaupaleiðin er einn og hálfur kílómetri, þáttaka er ókeypis og fá allir þáttakendur verðlaunapening.
Þá verður Sirkus Íslands á svæðinu og hljómsveitin Celebs ætlar að taka lagið.
Einnig er dagskrá í tilefni dagsins víðar á landinu. Á Akureyri verður safnast saman við Alþýðuhúsið og klukkan 14:00 er lagt af stað í kröfugöngu við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar. Hátíðardagskrá verður í Hofi að lokinni kröfugöngu. Þar verða haldnar ræður og boðið upp á kaffiveitingar. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri mætir svo og syngur.
Á Selfossi verður kröfuganga frá Austurvegi 56 sem hefst klukkan 11:00. Lúðrasveit Selfoss leiðir gönguna að Hótel Selfoss þar sem skemmtun fer fram. Haldnar verða ræður og mun Benedikt Búálfur syngja og skemmta börnunum. Auk þess mun Valgeir Guðjónsson koma fram.
Á Akranesi mun kvennakórinn Ymur syngja, haldin verður hátíðarræða og svo verður fjöldasöngur. Að lokum verður boðið upp á kaffiveitingar.
Í Fjallabyggð verður boðið upp á dagskrá milli 14:30 og 17:00 í sal að Eyrargötu 24b á Siglufirði. Þar mun 1. maí nefnd stéttarfélaganna flytja ávarp og boðið verður upp á kaffiveitingar.