Geoffrey Hinton hefur unnið að þróun gervigreindar eins og spjallyrkisins ChatGPT undanfarna hálfa öld. Hann hætti nýlega hjá tæknirisanum Google svo hann gæti talað opinskátt um þær hættur sem hann telur stafa af gervigreindinni. Hann lýsir áhyggjum sínum við New York Times; skil milli raunveruleika og sýndarveruleika verði æ óljósari og störf þurrkist út. Og í fjarlægari framtíð hefur Hinton jafnvel áhyggjur af því að gervigreindin ógni tilvist mannkynsins sjálfs. Að drápsvélmenni í dystópískum vísindaskáldsögum verði að veruleika.
Hafsteinn Einarsson lektor í tölvunarfræði segir ákvörðun Hintons þýðingarmikla.
„Það að hann hætti hjá Google hefur mikið vægi. Og bara við það ættum við kannski öll aðeins að staldra við og hugsa hvað þetta hefur verið að gerast hratt og hvað er í rauninni að fara að gerast í framtíðinni,“ segir Hafsteinn.
Haraldur Þorleifsson frumkvöðull, sem þar til nýlega starfaði hjá samfélagsmiðlarisanum Twitter, tekur undir með Hafsteini. Þróunin sé mun hraðari en flestir reiknuðu með.
„Þetta er að gerast eiginlega allt á forsendum tækninnar, ekki á forsendum fólks. Og það verður mjög hröð breyting. Miklu hraðari og stærri en fólk gerir sér grein fyrir og þá er ég að tala um kannski næstu tíu ár.“

Hafsteinn hefur einna mestar áhyggjur af samkeppni risa eins og Google og Microsoft sem þegar er hafin.
„Þá fer maður að spyrja sig: Hvert fer siðferðið? Og hvernig er hægt að gera þetta með ábyrgum hætti þegar þetta snýst um að fá sem flesta notendur og græða sem mestan pening?“
Tekur gervigreindin yfir?
Heilt yfir er Hafsteinn þó ekki mjög uggandi.
„Við erum ekki að sjá einhverja ofurgervigreind að verða til sem mun taka yfir, eða eitthvað slíkt. En fólk hefur áhyggjur af því að missa mögulega starfið því það er hægt að leysa þeirra verkefni með gervigreind,“ segir Hafsteinn.
Haraldur er öllu áhyggjufyllri.
„Það er fræðilegur möguleiki, alvöru möguleiki, að tæknin muni taka það miklum breytingum það hratt að hún síðan taki yfir og við endum í algjörlega nýjum heimi, þar sem við erum ekki ráðandi lífverurnar. Það þarf að grípa inn í með alþjóðlegum lögum og reglum. Það er eina leiðin til þess að hægja á þróuninni,“ segir Haraldur.
Viðtal kvöldfrétta við bæði Harald Þorleifsson og Hafstein Einarsson má sjá í spilaranum fyrir ofan.