Lífið

Taylor Swift gengin út á met­tíma

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Taylor Swift var ekki lengi að þessu en þó lengur en opinberar fregnir hafa gefið til kynna.
Taylor Swift var ekki lengi að þessu en þó lengur en opinberar fregnir hafa gefið til kynna. Getty/Amy Sussman

Bandaríska söngkonan Taylor Swift er komin með nýjan kærasta. Hinn heppni er breski tónlistarmaðurinn Matty Healy. Minna en mánuður er síðan söngkonan og enski leikarinn Joe Alwyn hættu saman, að minnsta kosti opinberlega.

Það er breska götublaðið The Sun sem fullyrðir þetta og slær því upp að báðir séu þeir Healy og Alwyn frá London borg. Áður hefur komið fram að söngkonan og Healy hafi farið í sitt hvora áttina sem perluvinir eftir sex ára samband.

Healy er fæddur sama ár og söngkonan, árið 1989 og er því 34 ára gamall. Hann er söngvari og lagahöfundur hljómsveitarinnar 1975. Slær The Sun því upp að hann sé vanur lífstíl tónlistarmanna og því henti það söngkonunni einkar vel að vera með honum í sambandi.

Hefur breska götublaðið eftir ónefndum heimildarmanni, sem sagður er vera náinn söngkonunni, að hún sé einkar hamingjusöm með hinum nýja manni. Þau séu raunar þegar orðin ástfangin.

„Það er ekki langt liðið á sambandið, en þeim líður báðum vel. Þau voru fyrst saman fyrir einhverjum tíu árum síðan í stuttan tíma en tímasetningin gekk ekki upp,“ segir ónefndi heimildarmaður breska götublaðsins.

Bætir hann í og segir að Swift hafi í raun verið einhleyp frá því í febrúar, þrátt fyrir að það hafi ekki verið greint frá því fyrr en í síðasta mánuði. Hún og Healy hafi verið í mismunandi tónleikaferðalögum en verið dugleg að tala saman í gegnum FaceTime.

„Þar sem þau eru bæði alþjóðlegar stjörnur þá gera þau sér vel grein fyrir pressunni sem fylgir starfinu og öllum tímanum sem fer í þetta. Þannig þau styðja hvort annað í þessu og eru bæði afar spennt fyrir þessu sambandi.“

Healy er nýja ástin í lífi Taylor Swift. Mauricio Santana/Getty

Tengdar fréttir

Swiftingar í ástar­lífinu

Bandaríska stórsöngkonan Taylor Swift og enski leikarinn Joe Alwyn eru hætt saman eftir rúmlega sex ára samband. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×