Viðskipti innlent

Tvær til­kynningar um hóp­upp­sagnir í apríl

Atli Ísleifsson skrifar
Alls var 54 sagt upp hjá sveitarfélaginu Árborg í síðasta mánuði.
Alls var 54 sagt upp hjá sveitarfélaginu Árborg í síðasta mánuði. Vísir/Vilhelm

Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í apríl þar sem 71 einstaklingi var sagt upp störfum.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar. Alls var 54 sagt upp í opinberri stjórnsýslu og er þá vísað í uppsagnir hjá Árborg sem tilkynnt var um upp úr miðjum síðasta mánuði. Þá var sautján manns sagt upp í annarri hópuppsögn í apríl og var sú í flutningsgeira.

Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsögn í marsmánuði þegar 28 starfsmönnum sagt upp í verslunarstarfsemi. Þar var um að ræða uppsagnir hjá Heimkaup.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.


Tengdar fréttir

Ein hóp­upp­sögn skráð í mars

Vinnumálastofnun barst einungis ein tilkynning um hópuppsögn í mars. Þá var 28 starfsmönnum sagt upp í verslunarstarfsemi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×