Viðskipti innlent

Erna Björk nýr fjár­mála­stjóri Advania

Atli Ísleifsson skrifar
Erna Björk Sigurgeirsdóttir.
Erna Björk Sigurgeirsdóttir. Advania

Erna Björk Sigurgeirsdóttir hefur verið ráðin nýr fjármálastjóri Advania og tekur sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Hún kemur til Advania frá Sýn.

Í tilkynningu frá Advania segir að Erna Björk muni fara fyrir fjármálum og rekstri Advania og leiða hagdeild fyrirtækisins. Erna Björk tekur við stöðunni af Jóni Brynjari Ólafssyni sem hefur tekið við stöðu forstöðumanns fjármála hjá Sýn.

„Hún er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands auk þess að vera löggildur verðbréfamiðlari.

Erna starfaði hjá Sýn frá árinu 2020 þar sem hún var forstöðumaður fjármála og leiddi hagdeild, reikningshald og innheimtu. Áður gegndi hún starfi fjármálasérfræðings hjá Borgun og þar á undan var hún verkefnastjóri á ráðgjafasviði fjármálagreininga KPMG,“ segir í tilkynningunni. 


Tengdar fréttir

Jón Brynjar ráðinn for­stöðu­maður fjár­mála hjá Sýn

Jón Brynj­ar Ólafs­son hefur verið ráðinn til Sýnar og mun hann leiða fjármál sem er deild á sviði fjármála og stefnumótunar. Deildin nær yfir uppgjör og reikningsskil, hagdeild og innheimtu og mun Jón Brynjar vera forstöðumaður þeirrar deildar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×