Enski boltinn

Ekkert lið lengur að taka markspyrnur en Newcastle

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nick Pope er sjaldnast í miklum flýti að taka markspyrnur.
Nick Pope er sjaldnast í miklum flýti að taka markspyrnur. getty/Laurence Griffiths

Eftir leik sigur Arsenal á Newcastle United í gær, 0-2, kvartaði Eddie Howe, knattspyrnustjóri Skjóranna, sáran yfir töfum Skyttanna í leiknum.

Howe fannst boltinn vera of lítið í leik í leiknum og var afar ósáttur við tafir Arsenal-manna.

Einhverjum þótti það þó vera kaldhæðni örlaganna að ekkert lið í ensku úrvalsdeildinni er lengur að taka markspyrnur en Newcastle samkvæmt mælingu Sky Sports.

Newcastle er að meðaltali 36,8 sekúndur að taka markspyrnur í ensku úrvalsdeildinni, langlengst allra liða. Þar á eftir kemur Everton (33,1) og svo Brentford (32,9).

Martin Ödegaard kom Arsenal yfir gegn Newcastle í gær á 14. mínútu. Átján mínútum fyrir leikslok skoraði svo Fabian Schär sjálfsmark og lokatölur 0-2.

Newcastle er áfram í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 65 stig. Arsenal er í 2. sætinu með 81 stig, einu stigi á eftir toppliði Manchester City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×