Nýverið breytti Módern opnunartímanum sínum þannig að verslunin er opin frá klukkan tíu til fimm en ekki ellefu til sex eins og algengt er. Að mati Úlfars er orðið tímabært að verslunargeirinn endurskoði þennan rótgróna opnunartíma. Hann sé hreinlega ekki í takt við tímann.
Ekki aðeins hafi kauphegðun fólks breyst, heldur hefur það oft gert fólki erfitt fyrir að starfa við verslun og þjónustu einfaldlega vegna þess að það er opið til klukkan sex.
„Við sem störfum hér erum flest með börn. Við hjónin eigum sjálf tvö börn sem eru sex og níu ára. Að loka klukkan fimm á daginn í staðinn fyrir klukkan sex er ekki samanburðarhæft. Áður var það til dæmis borin von að ég eldaði kvöldmat heima. Því þegar að ég lokaði klukkan sex, gerði upp kassann og keyrði heim, var klukkan orðin um korter í sjö þegar ég var komin þangað og hreinlega of seint að byrja að elda kvöldmat,“ segir Úlfar.
Áhrifavaldar: Netið og Covid
Úlfar rekur Módern ásamt eiginkonu sinni, Kristínu Rut Jónsdóttur. Þau hófu reksturinn 2006 og þekkja því umhverfi sérvöruverslana frá því fyrir hrun.
Úlfar segir að auðvitað hafi ládeyða einkennt verslunarrekstur fyrstu árin eftir hrun.
„En þegar verslun fór að glæðast á ný hefur maður séð kauphegðun fólks breytast. Sérstaklega eftir Covid. Fólk virðist hafa meiri sveigjanleika til að koma í verslunina á daginn en ekki eftir klukkan fimm eins og einu sinni var. Því áður var traffíkin mest í lok dags og á laugardögum. Þetta hefur gjörbreyst.“
Úlfar segir marga aðra þætti líka hafa haft áhrif.
„Netið hefur breytt rosalega miklu. Því fyrsti búðarglugginn sem fólk skoðar er á netinu. Þetta þýðir að fólk er ekki eins mikið að rápa í búðir til að skoða eins og það gerði einu sinni. Þegar fólk kemur til okkar er það vel undirbúið og er kannski að velja á milli tveggja valkosta en veit hvað það vill,“ segir Úlfar og bætir við:
,,Þá hefur það líka breyst að netið hefur aukið álagið á starfsfólk því fyrirspurnir í gegnum samfélagsmiðla eins og Facebook, Instagram eða í tölvupósti eru orðnar svo margar. Þetta er vinna sem gott er að leysa úr fyrr á morgnana og þess vegna á það betur við að opna klukkan tíu á morgnana en ekki ellefu eins og við gerðum áður.“
Úlfar telur breytinguna vera í takt við það sem er að gerast víða annars staðar.
„Við sjáum erlendis að opnunartími verslana er að breytast víða. Að minnsta kosti í þessum sérvörugeira. Á sumum stöðum er það jafnvel þannig að verslanir eru almennt lokaðar nema þegar fólk pantar sér skoðunar- og ráðgjafatíma. Það er hægt hjá okkur líka í gegnum Noona appið.“
Þá segir Úlfar tíðarandann hafa breyst mikið.
Maður fann það mikið í kjölfar umræðunnar um styttingu vinnuvikunnar að fólk er farið að horfa á þessa hluti öðruvísi en áður.
Það þykir jákvætt í dag að bjóða upp á fjölskylduvænni vinnustaði og fólk er almennt farið að meta hlutina öðruvísi: Velur að vera meira með börnunum sínum og ganga frá erindum fyrr á daginn þegar hægt er og svo framvegis.
Opnunartími verslana hefur hins vegar ekki þróast í takt við það hvernig tíðarandinn hefur þróast, kauphegðunin breyst eða með nýjungum eins og netverslun.“

Margvíslegur ávinningur fyrir verslanir
Úlfar hvetur aðra verslunareigendur til að skoða breyttan opnunartíma og loka klukkan fimm, sérstaklega í sérvörugeiranum.
„Ég hlakka svolítið til þegar við förum í ráðningar næst. Því það verður allt annað að finna fólk til starfa með opnunartíma klukkan fimm frekar en klukkan sex. Að vinna frá klukkan tíu til fimm er svo miklu fjölskylduvænni vinnutími.“
Enda segir Úlfar það löngu þekkt að opnunartími klukkan sex hefur oft gert fólki erfitt fyrir.
„Auðvitað leysir fólk úr málum með því að skiptast á og reyna að búa til einhvers konar fyrirkomulag þannig að hitt foreldrið geti sótt eða skutlað börnum og svo framvegis. En vinnutíminn til klukkan sex getur oft verið íþyngjandi og fælt frá að vinna í verslun.“
Úlfar viðurkennir að auðvitað hafi það tekið þau hjónin nokkuð langan tíma að taka þessa ákvörðun. Því að opnunartími til klukkan sex sé rótgróin hefð á Íslandi.
„En við horfðum á tölurnar og hvernig þær höfðu breyst. Einu sinni var um 80% af sölunni okkar að fara fram á milli klukkan fjögur og sex á daginn og á laugardögum. Þetta á ekki við lengur því fólk er að meta þennan tíma öðruvísi í sínu lífi. Það er reyndar ágætt að taka það fram að við breyttum opnunartímanum bara 1.maí þannig að það er stutt síðan. En við höfum aldrei selt meira en nú og þess vegna metum við það svo að það sé ekki tíminn á milli fimm og sex sem skiptir máli því kauphegðunin hefur hreinlega breyst.“
Margt hafi líka opnast sem ný tækifæri.
„Ég nefni sem dæmi kaupendur á landsbyggðinni. Í Covid gerðist það að við vorum sí og æ með símann á lofti að sýna fólki og taka samtölin við þau með vídeói. Þetta er enn þá. Ég get verið með viðskiptavin á Akureyri og er að taka söluráðgjöfina með vídeói. Fólk á landsbyggðinni er líka farið að nýta sér netverslunina mikið. Þá hafa opnast ný tækifæri með bókunarkerfum eins og Noona. Fólk getur bókað hjá okkur söluráðgjöf og skoðun og ef það þarf að koma á milli klukkan fimm og sex, þá er það ekkert mál því auðvitað viljum við vera á staðnum þegar fólk þarf á okkur að halda.“
Úlfar segist sjálfur telja að þróunin verði í þá áttina að opnunartími verslana muni breytast.
Ég vil bara benda á að miðað við hvað það eru miklar breytingar búnar að vera síðustu árin þá hafa breytingarnar ekki verið í samræmi við þróunina hjá mörgu verslunarfólki.
Það er eitthvað ójafnvægi þar, að minnsta kosti víða þótt auðvitað eigi það ekki alltaf við að verslanir geti þjónustu sinnar vegna lokað klukkan fimm.
En ég myndi tvímælalaust hvetja fleiri til að gera það og skapa um leið fjölskylduvænni vinnustaði og þó án þess að skerða þjónustuna. Því það höfum við svo sannarlega ekki gert.“