Blaðamannafundurinn hefst klukkan 13 og verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.
Eins og Vísir greindi frá í síðustu viku hafa samningar náðst um að Snorri Steinn Guðjónsson, fráfarandi þjálfari Vals, verði næsti landsliðsþjálfari.
Á fundinum í dag ætti svo að skýrast til hve langs tíma samningur Snorra við HSÍ er, og hverjir verða í þjálfarateymi hans.
Samkvæmt upplýsingum Vísis verður Arnór Atlason, fyrrverandi samherji Snorra til margra ára úr landsliðinu, aðstoðarþjálfari. Arnór er í dag aðstoðarþjálfari Álaborgar sem hóf úrslitaeinvígið við GOG í gær, um danska meistaratitilinn. Hann er einnig þjálfari U21-landsliðs Dana. Lengi hefur legið fyrir að Arnór myndi hætta báðum störfum í sumar og taka við sem aðalþjálfari TTH Holstebro.
Byrjar á krefjandi verkefni
Fyrsta stóra verkefni Snorra sem landsliðsþjálfari verður Evrópumótið í Þýskalandi í janúar. Þar spilar Ísland í riðli með Serbíu, Svartfjallalandi og Ungverjalandi, og komast tvö lið áfram í milliriðlakeppnina. Góður árangur á EM gæti skilað Íslandi í umspil um sæti á Ólympíuleikunum sem fram fara í París sumarið 2024.
Ísland var í efsta styrkleikaflokki fyrir EM-dráttinn eftir árangur sinn á síðasta EM og sigur í sínum riðli í undankeppninni. Liðið lék undir stjórn Gunnars Magnússonar og Ágústs Jóhannssonar, fyrrverandi aðstoðarmanna Guðmundar, í síðustu fjórum leikjum undankeppninnar.
Aðeins stýrt Val
Snorri Steinn er einn af silfurstrákunum úr Peking og vann einnig brons með landsliðinu á EM í Austurríki 2010. Hann er fimmti markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi - spilaði alls 257 leiki fyrir íslenska landsliðið og skoraði í þeim 848 mörk eða 3,3 að meðaltali í leik.
Snorri, sem er 41 árs gamall, hefur þjálfað karlalið Vals allan sinn þjálfaraferil. Hann sneri heim árið 2017 eftir farsælan feril í atvinnumennsku og var ráðinn spilandi þjálfari Vals en hann stýrði þá liðinu ásamt Guðlaugi Arnarssyni.
Undir stjórn Snorra varð Valur Íslands- og bikarmeistari bæði árin 2021 og 2022, auk þess að verða deildarmeistari 2020 og aftur í vor. Þá náði liðið eftirtektarverðum árangri í Evrópudeildinni í vetur og komst í 16-liða úrslit.
Valdi landsliðið fram yfir GOG
Viðræður á milli Snorra og HSÍ tóku langan tíma en fyrstu óformlegu viðræðurnar hófust snemma í mars. Langt hlé varð á viðræðum á meðan að forráðamenn HSÍ könnuðu möguleikann á að ráða erlendan þjálfara, hinn norska Christian Berge eða Danann Nicolej Krickau, en báðir höfnuðu því og í kjölfarið hófust formlegar viðræður á milli Snorra og HSÍ.
Málið flæktist fyrir hálfum mánuði þegar danska félagið GOG setti sig í samband við Snorra, eftir að tilkynnt hafði verið að Krickau tæki við Flensburg, en Snorri valdi hins vegar íslenska landsliðið fram yfir sitt gamla félag í Danmörku.
Blaðamannafundur HSÍ ætti að hefjast klukkan 13 í dag og verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.