Lagið var frumflutt í Brennslunni á FM957 í morgun við góðar undirtektir. Lagið hefst þegar 8:09 er búið af myndbandinu:
Emmsjé Gauta þarf vart að kynna en hann hefur í um áratug verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Lagið samdi hann ásamt Þormóði Eiríkssyni, sem er maðurinn á bakvið marga hittara undanfarin misseri og hefur unnið með tónlistarmönnum á borð við Aron Can, Birni, Friðrik Dór og Herra Hnetusmjör. Jón Jónsson kom einnig að gerð lagsins.
„Vá hvað við erum búnir að vinna að þessu lengi,“ segir Þormóður um ferlið að baki laginu. „Við tókum tvö session í viku í nokkrar vikur. Gerðum sennilega tuttugu demó og enduðum á fyrsta demó.“
Fóru til Eyja og gáfu kórunum bjór
„Við ætluðum fyrst bara að gera ógeðslega kúl lag, ekkert um þessa eyju í laginu,“ segir Emmsjé Gauti og hlær. „Ætluðum að fara framhjá öllu en svo hlustuðum á katalóginn og veltum fyrir okkur hvað geri lag að þjóðhátíðarlagi, settum okkur í einhverjar aðstæður sem maður er ekki í „at the moment““.
Í anda þjóðhátíðar er kassagítar í stóru hlutverki í laginu. Upphaflega reyndist þeim erfitt að komast í rétta gírinn fyrir lagið en heimsókn til Vestmannaeyja gerði mikið fyrir þá félaga.
„Þar tókum við upp tvo kóra, karla- og kvennakóra Vestmannaeyja. Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt ferli.“ Til þess að fanga stemniguna í brekkunni færðu þeir kórnum bjór.
Gauti var með skýr skilaboð til hlustenda áður en lagið var spilað í Brennslunni:
„Hlustið á þetta þrisvar áður en setjið út á þetta. Ég sé hvað þið gerið á hverju einasta ári.“