Viðskipti innlent

Engin hóp­upp­sögn í maí

Atli Ísleifsson skrifar
Aðalskrifstofur Vinnumálastofnunar eru til húsa á Grensásvegi.
Aðalskrifstofur Vinnumálastofnunar eru til húsa á Grensásvegi. Vísir/Vilhelm

Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í síðasta mánuði.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálstofnunar.

Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í apríl þar sem 71 einstaklingi var sagt upp störfum. Þar var 54 sagt upp hjá sveitarfélaginu Árborg og þá var sautján manns sagt upp í flutningsgeira.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×