Binance býður upp á viðskipti með fjölda rafmynta og er umsvifamest á því sviði í heiminum. Fyrirtækið er skráð á Cayman-eyjum en Changpeng Zhao, stofnandi þess, er kanadískur ríkisborgari en fæddur í Kína.
Verðbréfa- og kaupþingsnefnd Bandaríkjanna (SEC) höfðaði mál gegn Binance fyrir brot í þrettán liðum fyrir umdæmisdómstól í Washington-borg í gær. Í stefnunni er Binance og Zhao sakað um að hafa auðgast um milljarða dollara á því að tefla á tvær hættur með fjármuni fjárfesta, að því er kemur fram í frétt New York Times.
SEC krefst bóta frá Binance og að Zhao verði bannað að stýra félögum sem gefa út verðbréf í Bandaríkjunum.
Gary Gensler, formaður SEC, sakaði Binance um umfangsmikinn blekkingarvef, hagsmunaárekstra, skort á gegnsæi og lögbrot í yfirlýsingu í gær.
„Almenningur ætti að vara sig á því að fjárfesta eignum sínum sem hann stritaði fyrir hjá eða í þessum ólöglega vettvangi,“ sagði Gensler.
Á meðal ásakananna er að Binance hafi blandað eigin fjármunum saman við milljarða dollara innistæður viðskiptavina. Hluti innistæðnanna hafi verið færður á laun inn í annað félag í eigu Zhao sem nefnist Sigma Chain. Það er sama brot og FTX og Sam Bankman-Fried, stofnandi þess, sætir nú ákæru fyrir í New York.
Bankman-Fried var framseldur frá Bahamaeyjum til Bandaríkjanna í fyrra. Hann er sakaður um að hafa fært fjármuni viðskiptavina út úr FTX og inn í eigið fyrirtæki sem stundaði áhættufjárfestingar með rafmyntir. Auk þess er hann ákærður fyrir peningaþvætti, fjársvik og verðbréfasvindl.
„Við störfum sem andskotans ólögleg kauphöll í Bandaríkjunum, gaur“
Í stefnunni er því haldið fram að eigendur Binance hafi verið fullkunnugt um lögbrot, að sögn AP-fréttastofunnar. Vitnar SEC til samskipta aðalregluvarðar Binance við undirmann sinn í desember árið 2019 þar sem hann virtist játa eitt brotanna. „Við störfum sem andskotans ólögleg kauphöll í Bandaríkjunum, gaur.“
Absolutely legendary quote here in this SEC complaint. https://t.co/tvqFwGCju0 HT: @lopezlinette pic.twitter.com/lBpfkRI0sp
— Joe Weisenthal (@TheStalwart) June 5, 2023
Fulltrúar fyrirtækisins eru sagðir hafa logið að fjárfestum og bandarískum eftirlitsstofununum, meðal annars um hömlur á viðskipti bandarískra notenda kauphallarinnar. Þeirra viðskipti áttu eingöngu að fara fram í gegnum bandarískt dótturfélag Binance.
Binance gaf út yfirlýsingu á samfélagsmiðlum um að fyrirtækið væri samvinnufúst í rannsókn SEC. Stofnunin hefði hins vegar kosið að starfa einhliða og fara með málið fyrir dómstóla. Fyrirtækið ætli að verja sig af festu.
New York Times segir að bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsaki Binance fyrir peningaþvætti. Önnur bandarísk eftirlitsstofnun höfðaði mál gegn Binance fyrir meint brot á bandarískum lögum um framtíðarsamninga í mars.