Fram kemur á heimasíðu Costco á Íslandi að meðlimir geti nú keypt áfengi með því að stofna aðgang á netingu. Hægt sé að sækja allar vörur samdægurs. Aldurstakmark er tuttugu ár.
Til þessa hefur Costco aðeins selt áfengi til heildsala.
Fréttastofa gerði lauslegan verðsamanburð á nokkrum vörum hjá Costco og Vínbúðinni.
Einn lítri af Jack Daniels viský kostar 10 þúsund krónur hjá Costco en rúmar 12 þúsund krónur í Vínbúðinni. Minni munur er á Beefeater gini sem kostar 9400 krónur hjá Costco en 10 þúsund krónur í Vínbúðinni. Perroni bjór, 330 millilítra í flösku, kostar 321 krónur hjá Costco en 399 krónur hjá Vínbúðinni. Þá kostar Tommassi Ripasso rauðvín 3200 krónur í Costco en 3700 krónur í Vínbúðinni.