Spilafíkill hafði fjármuni af þroskaskertum mönnum Árni Sæberg skrifar 14. júní 2023 18:37 Konan segist glíma við alvarlega spilafíkn. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir konu sem grunuð er um að hafa svikið 25 milljónir af að minnsta kosti ellefu karlmönnum, þar af sex með þroskaskerðingu. Konan segist haldin alvarlegri spilafíkn.
Lögreglu barst ábending frá Fjármálagreiningardeild lögreglu í janúar síðastliðnum um að konan hefði sett sig í samband við karlmenn á einkamálasíðum og samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að hafa af þeim fjármuni. Í úrskurðinum kemur fram að á tveimur árum hefðu um 400 karlmenn lagt yfir 200 milljónir á bankareikninga konunnar. Landsréttur féllst á að miklar líkur væru á því að konan héldi brotastarfsemi sinni áfram og var hún því úrskurðuð í gæsluvarðhald til 30. júní. Komst yfir rafræn skilríki og stofnaði til skulda Ætlaður brotaferill konunnar nær aftur til ársins 2018. Á árunum 2018 til 2022 barst lögreglu fjöldi kæra samhljóða þeim sem lýst er hér að framan. Kærendur greindu frá því að samskiptin við konuna hafi færst af einkamálasíðum og á snapchat og/eða í farsíma. Hafi margir hverjir afhent henni pening sem hún hefur aldrei endurgreitt þrátt fyrir loforð um slíkt. Af kærendum á tímabilinu er tveir einstaklingar með þroskaskerðingu. Konan hefur í skýrslutöku hjá lögreglu játað hluta brotanna og greint frá því að hún hafi verið á slæmum stað og glímt við spilafíkn. Kvaðst hún hafa leitað til lækna og SÁA til þess að hætta í spilakössum og netspilum. Þá barst lögreglu einnig tilkynningar um að konan hafi að minnsta kosti tvisvar komist yfir rafræn skilríki manna og stofnað nýja bankareikninga í þeirra nafni, tekið lán í þeirra nafni og nýtt í eigin þágu. Handtekin í febrúar Á grundvelli þeirra upplýsinga sem lögreglan hafði í febrúar síðastliðnum, var konan handtekin og í skýrslutöku hjá lögreglu var hún spurð um meint fjársvik og færslur frá fjórum kærendum. Hún sagði að um væri að ræða lán og að hún myndi borga það til baka. Upphæðirnar sem um teflir nema yfir 15 milljónum króna. Kærendurnir lýstu því að konan hafi beðið um pening og þeir millifært til hennar lán sem hún ætlaði að greiða til baka, ásamt því að hafa stofnað til skuldbindinga í þeirra nafni án þeirrar vitundar. Hélt ótrauð áfram Þrátt fyrir að konan hafi verið handtekin í febrúar tók hún strax upp þráðinn aftur og síðan í mars hafa tíu karlmenn kært hana til lögreglu. Fjórir þeirra eru með þroskaskerðingu. Þá greindu mennirnir frá því hvernig þeir hefðu verið blekktir til þess að veita lán, og konan hefði gefið ýmsar ástæður fyrir því að henni vantaði nauðsynlega lán, sem hún myndi greiða til baka. Einn þeirra greindi frá því að hann hafi haldið að þyrfti að nota rafræn skilríki til þess að samþykkja innborganir frá konunni. Síðan hafi hann fengið skilaboð frá Íslandsbanka og hann boðinn velkominn í viðskipti. Þá hafi hann séð að óskað hafði verið eftir 500 þúsund króna yfirdráttaheimild á þann reikning, sem hann kvaðst ekki hafa gert sjálfur. Hann hefði búið erlendis og þekkti ekki mikið til rafrænna skilríkja. Annar greindi frá því að hann væri með parkinssons og að hann hafi lánað henni pening, en hann hafi talið sig þurfa að aðstoða hana í neyð svo að hún yrði ekki úti. Hún hafi ítrekað lofað endurgreiðslum. Á tímabili hafi hann verið með ofskynjanir vegna lyfjaeitrunar og þegar hann gat ekki lesið á símann sinn skilaboð frá konunni hafi hún hringt í hann og þrýst á hann að samþykkja með rafrænum skilríkjum. Þegar hann hafi verið komin á spítala hafi dóttir hans tekið eftir því að bankareikingur hans var 1,4 milljónir í mínus í Arion banka og að Aur lán hafi verið tekið í Íslandsbanka á hans nafni að upphæð 700 þúsund krónur. Sagðist eiga von á arfi Konan var handtekin á ný þann 6. júní og tekin var af henni skýrsla. Í skýrslutöku hjá lögreglu greindi konan frá því að í mörgum tilfellum hafi verið um lán að ræða en hún ætti von á arfi og til stæði að greiða fjárhæðirnar til baka. Einnig kvaðst hún vera að vinna í spilavanda sínum og væri búin að panta tíma hjá SÁÁ. Þá kvaðst hún ýmist hafa fengið leyfi til að fara inn á rafræn skilríki mannanna eða neitaði að tjá sig aðspurð um hvort hún hafi stofnað til fjárhagslegra skuldbindinga í nafni þeirra. „Það er mat lögreglu að kærða sé undir rökstuddum grun um að hafa ítrekað og fjölda tilfella beitt blekkingum, hagnýtt sér óljósar hugmyndir einstaklinga og þannig haft af þeim fé. Hún hafi blekkt menn með því að óska eftir láni þegar henni var ljóst að hún gæti ekki borgað þau til baka og telur lögregla að hún hafi haft einbeittan brotavilja og ásetning í því að blekkja brotaþola og ýmist villa um fyrir þeim og stofnað til skuldbindinga í þeirra nafni eða blekkt þá með ósönnum fullyrðingum svo hún myndi greiða til fjárhæðir til baka. Þá telur lögregla samtals sex brotaþola vera með þroskaskerðingu af þeim sem hafa leitað til lögreglu en talið er að fjöldi brotaþola hafi ekki enn leitað til lögreglu,“ segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness. Héraðsdómur féllst á mat lögreglunnar þess efnis að konan lægi undir rökstuddum grun um að hafa framið fjölmörg brot og að hún væri líkleg til þess að halda brotum sínum áfram. Hún var því úrskurðuð í gæsluvarðhald til 30. júní næstkomandi. Landsréttur staðfesti úrskurðinn með vísan til forsendna héraðsdóms.
Lögreglumál Fíkn Efnahagsbrot Dómsmál Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Innlent Hótaði heimilismönnum með skærum Innlent Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Innlent Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Erlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Fleiri fréttir Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Útlit fyrir að varnir Bláa lónsins haldi Hart tekist á um fyrirætlanir Heidelberg í Þorlákshöfn Bein útsending: Hver er sýn flokkanna á lífskjör eldra fólks? Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Káfaði á konu á salerni skemmtistaðar Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík „Ekki rólegur með hraunið ofan á“ Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Varar við sprengjum á svæðinu við gosstöðvarnar Sjá meira