Fótbolti

PSG beinir sjónum sínum að Arteta

Hjörvar Ólafsson skrifar
Mikel Arteta ku vera á óskalista forráðamanna PSG
Mikel Arteta ku vera á óskalista forráðamanna PSG Vísir/Getty

Franski fjölmiðillinn RMC greinir frá því að forráðamenn Paris Saint-Germain hafi sett sig í samband við Mikel Arteta, knattspyrnustjóra Arsenal, og kannað hug hans til þess að færa sig um set til Parísar og taka við stjórnartaumunum hjá liðinu.

PSG er í leit að nýjum þjálfara eftir að félagið lét Christophe Galtier taka pokann sinn að loknum síðastliðnu keppnistímabili en undir hans stjórn varð liðið franskur meistari annað árið í röð. Það dugði hins vegar ekki til þess að Galtier héldi starfi sínu.  

Talið er að viðræður forráðamanna við Julian Nagelsmann sem lét af störfum hjá Bayern München síðasta vor hafi siglt í strand og nú sé Arteta næsta skotmarkið í stjórastólinn hjá katörskum eigendum PSG.  

Arteta er hins vegar samningsbundinn Arsenal fram á næsta sumar en lærisveinar hans enduðu í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×