Íslenski boltinn

Blair-verk­efninu lokið í Kefla­vík

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Marley Blair skoraði 1 mark í 10 leikjum á leiktíðinni.
Marley Blair skoraði 1 mark í 10 leikjum á leiktíðinni. Vísir/Diego

Keflavík og Marley Blair hafa komist að samkomulagi um að rifta samningi leikmannsins. Hann mun því ekki spila meira með Keflavík í Bestu deild karla í knattspyrnu.

Blair gekk aftur í raðir Keflavíkur skömmu fyrir mót eftir að hafa spilað 15 leiki með liðinu í deild og bikar sumarið 2021.

Hann hefur hins vegar engan veginn staðið undir væntingum í ár og gengi Keflavíkur verið afleitt það sem af er sumri. Því var ákveðið að rifta samningi hans en frá þessu er greint á vef Víkurfrétta.

Keflavík situr sem stendur á botni Bestu deildar með aðeins 7 stig að loknum 11 umferðum, fjórum stigum frá öruggu sæti.

Klukkan 19.15 mætast Keflavík og Fylkir en gestirnir sitja með 11 stig í 10. sæti. Leikurinn verður sýndur beint á rás Bestu deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×