Lífið

Kvað orð­róm um fram­hjá­hald í kútinn

Máni Snær Þorláksson skrifar
Jennifer Lawrence á frumsýningu kvikmyndarinnar No Hard Feelings á dögunum.
Jennifer Lawrence á frumsýningu kvikmyndarinnar No Hard Feelings á dögunum. EPA/MARISCAL

Leikkonan Jennifer Lawrence segist ekki hafa valdið sambandsslitum tónlistarstjörnunnar Miley Cyrus og leikarans Liam Hemsworth. Lawrence kveður orðróm um framhjáhald leikarans við sig í kútinn.

Lawrence var gestur í þættinum Watch What Happens Live með Andy Cohen þar sem hún var spurð út í orðróm þess efnis að Hemsworth hafi haldið framhjá Cyrus með sér. 

Orðrómurinn spratt upp eftir að Cyrus gaf út tónlistarmyndband við lag sitt Flowers en í myndbandinu klæðist hún gullituðum kjól. 

Hér má sjá kjólinn sem Cyrus klæddist í tónlistarmyndbandinu. Hann er gullitaður en það er þó erfitt að sjá önnur líkindi með honum og kjólnum sem Lawrence klæddist.Skjáskot/YouTube

Töldu einhverjir að með því væri hún að ýja að því að Lawrence hefði haft eitthvað að gera með sambandsslitin þar sem hún klæddist svipuðum kjól á frumsýningu kvikmyndarinnar The Hunger Games.

Josh Hutcherson, Jennifer Lawrence og Liam Hemsworth á frumsýningunni. Eins og sjá má klæddist leikkonan gullituðum kjól þetta kvöldið.EPA/DANIEL DEME

Þessir tveir kjólar eru þó nokkuð ólíkir þrátt fyrir að vera eins á litinn. Enda virðist ekki hafa verið fótur fyrir neinu í þessum sögusögnum miðað við það sem Lawrence segir í þættinum hjá Cohen.

„Ekki satt, algjör orðrómur. Við vitum öll að ég og Liam kysstumst einu sinni, þá voru liðin ár síðan þau hættu saman. Svo ég gerði alltaf ráð fyrir því að þetta [kjóllinn] hafi verið tilviljun.“


Tengdar fréttir

Miley Cyrus skýtur fast á fyrrverandi í nýju lagi

Söngkonan Miley Cyrus var að senda frá sér lagið Flowers og það virðist sem lagið fjalli um hjónaband hennar og Liam Hemsworth. Aðdáendur hennar eru að minnsta kosti sannfærðir um það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.