Lífið

Enn eitt Love Is­land parið í valnum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lana og Ron voru eitt af vinsælustu pörunum í níundu seríu af Love Island sem sýnd var í vetur.
Lana og Ron voru eitt af vinsælustu pörunum í níundu seríu af Love Island sem sýnd var í vetur.

Enn eitt parið úr bresku raun­veru­leika­þáttunum Love Is­land er hætt saman. Að þessu sinni eru það þau Ron Hall og Lana Jenkins sem byrjuðu saman fyrir þremur mánuðum síðan í vetrar­út­gáfu raun­veru­leika­þáttanna vin­sælu.

Breska götu­blaðið The Sun greinir frá því að vega­lengdir hafi reynst parinu um megn. Ron býr í Manchester borg í norður­hluta Eng­lands en Lana skammt frá London. Parið skaust upp á al­þjóð­legan stjörnu­himinn þegar þau kynntust við tökur á þáttunum í Suður-Afríku í janúar.

Þar lenti parið að lokum í þriðja sæti en á­horf­endur höfðu haft litla trú á þeim þar sem Ron var afar hrifinn af því að líta í kringum sig. Breska götu­blaðið hefur eftir ó­nefndum heimildar­manni sem sagður er náinn stjörnunum að parið skilji í sátt.

Þau eru ekki fyrsta parið úr raun­veru­leika­þáttunum til þess að slíta sam­bandi sínu en Ekin-Su Cülcüloğlu og Davi­de Sancli­menti hættu saman í lok júní. Parið var eitt vin­sælasta Love Is­land par í heimi og því fóru tíðindin eins og eldur í sinu um net­heima. Þau voru þó tölu­vert lengur saman en þau Ron og Lana, eða ellefu mánuði.

Það er þó alls ekki al­gilt að pör endist ekki sem kynnist í þáttunum vinslælu. Dami Hope og Indi­yah Polack sem kynntust í áttundu seríu þáttanna eru enn saman og sóttu landið heim í nóvember síðast­liðnum. Þá eiga Molly Mae Hagu­e og Tom Fury barn saman og virðast aldrei hafa verið hamingju­samari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.