Nýlega var greint frá því að bíósýningum í Háskólabíói yrði hætt og að síðasta sýningin hafi verið þann 30. júní síðastliðinn. Fyrsta myndin var sýnd í húsinu árið 1961 og því á það rúmlega sextíu ára sögu sem kvikmyndahús. Sena, sem rekið hafði bíóið frá árinu 2007, taldi reksturinn ekki standa lengur undir sér.
Kvikmyndaunnendum mun hins vegar gefast tækifæri til að sjá kvikmyndir á nýjan leik í Háskólabíói, um tíma að minnsta kosti. En RIFF hefur samið um að Háskólabíó verði aðalbíóhús hátíðarinnar. Hún fer fram frá 28. september til 8. október næstkomandi.

Samkvæmt tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar er von á fjölda erlendra gesta og efnt verður til umræðna af ýmsu tagi. Þá verður sett upp ljósmyndasýning sem tengist tuttugu ára sögu RIFF í anddyrinu og haldnir tónleikar.
Auk Háskólabíós verður dagskrá í Norræna húsinu, á öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.
„Fyrir hátíðina verður húsið skreytt upp á nýtt að innan og allt gert til að gera móttökur sem hlýjastar fyrir gesti RIFF en það verður gert í samstarfi við Góða Hirðirinn í samræmi við umhverfisvæna stefnu hátíðarinnar,“ segir í tilkynningunni.


