Menning

Há­skóla­bíó verður aðal­bíó­hús RIFF

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Bíógestir munu fá tækifæri að fara aftur í Háskólabíó í haust.
Bíógestir munu fá tækifæri að fara aftur í Háskólabíó í haust.

Háskólabíó verður aðalbíóhús kvikmyndahátíðarinnar RIFF sem fram fer í haust. Bíóhúsið verður skreytt að innan í samstarfi við Góða Hirðirinn.

Nýlega var greint frá því að bíósýningum í Háskólabíói yrði hætt og að síðasta sýningin hafi verið þann 30. júní síðastliðinn. Fyrsta myndin var sýnd í húsinu árið 1961 og því á það rúmlega sextíu ára sögu sem kvikmyndahús. Sena, sem rekið hafði bíóið frá árinu 2007, taldi reksturinn ekki standa lengur undir sér.

Kvikmyndaunnendum mun hins vegar gefast tækifæri til að sjá kvikmyndir á nýjan leik í Háskólabíói, um tíma að minnsta kosti. En RIFF hefur samið um að Háskólabíó verði aðalbíóhús hátíðarinnar. Hún fer fram frá 28. september til 8. október næstkomandi.

Frá opnunarhátíðinni árið 2022.

Samkvæmt tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar er von á fjölda erlendra gesta og efnt verður til umræðna af ýmsu tagi. Þá verður sett upp ljósmyndasýning sem tengist tuttugu ára sögu RIFF í anddyrinu og haldnir tónleikar.

Auk Háskólabíós verður dagskrá í Norræna húsinu, á öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.

„Fyrir hátíðina verður húsið skreytt upp á nýtt að innan og allt gert til að gera móttökur sem hlýjastar fyrir gesti RIFF en það verður gert í samstarfi við Góða Hirðirinn í samræmi við umhverfisvæna stefnu hátíðarinnar,“ segir í tilkynningunni.

Frá opnunarhátíðinni árið 2022.

Hrönn Marínósdóttir stjórnandi RIFF á opnunarhátíðinni árið 2022.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra á opnunarhátíðinni árið 2022.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.