Bíó og sjónvarp

Sjáðu stiklu úr síðustu Kyn­fræðslunni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Þættirnir Sex Education fjalla á hispurslausan hátt um kynlíf ungmenna.
Þættirnir Sex Education fjalla á hispurslausan hátt um kynlíf ungmenna. Youtube

Í gær birtist stikla fyrir fjórðu og síðustu seríuna af Netflix-þáttunum Sex Education sem hafa notið mikilla vinsælda. 

Fjórða serían kemur út 21. september og gerist í nýjum skóla, Cavendish College, eftir að það er búið að selja gamla skólann, Moordale, til verktaka.

Í stiklunni má sjá hinn vandræðalega Otis, leikinn af Asa Butterfield, kynna sig á sviði í nýja skólanum.

„Ég eyði miklum frítíma mínum í að hugsa um kynlíf,“ segir hann.

„Ég lifi og anda kynlífi, allan daginn, alla daga. Að hugsa um kynlíf kemur mjög náttúrulega til mín af því ég lærði allt sem ég kann frá móður minni“ við mikla undran viðstaddra áður en Eric vinur hans grípur inn í til að reyna að skýra af hverju.

Eftir síðustu seríu greindu fjórar leikkonur í burðarhlutverkum í þáttunum að þær myndu ekki snúa afturí fjórðu seríuna.

Hins vegar virðist nú sem allavega ein þeirra, Rakhee Thakrar sem leikur kennarann Miss Emily, muni verða í seríunni eftir allt saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.