Í tilkynningu frá almannavörnum segir að næstu klukkustundir verði líklegt að mikil gasmengun verði og byggist upp sökum hægviðris. Fólk sem þegar hefur lagt af stað, eða er komið að eldstöðvunum er beðið að snúa þegar við.
„Það er áttleysa þarna á svæðinu og vindurinn hringsólar. Það er mikil hætta á því að fólk verði fyrir gaseitrun. Síðan er gott að fylgjast með því reglulega hvert gasið leitar hverju sinni miðað við þær áttir sem eru ríkjandi,“ segir Fannar Jónasson bæjarstjóri í samtali við fréttastofu.
Hann bendir á að fólk geti fylgst með stöðunni á loftgaedi.is og lokað gluggum ef gas frá gosinu berst til þeirra. Þá eigi börn og fólk sem er viðkvæmt í öndunarfærum alls ekki að vera utandyra í gasmenguninni.
Fólk ansi nálægt hrauninu
Viðvaranir yfirvalda stoppa þó ekki alla. Í beinu streymi frá gossvæðinu má sjá að fjöldi fólks er þegar á svæðinu, einhver þeirra fara ansi nálægt hrauninu.
Ísak Finnbogason er að stjórna beina streyminu sem sjá má hér fyrir neðan. Í samtali við fréttastofu segist hann þó vera í öruggri fjarlægð, enda þaulvanur. „Ég er uppi á fjalli hérna langt frá,“ segir Ísak sem passar að vera vindmeginn við gosið, að mengunin fjúki frá honum.
Biðluðu til fólks að fara ekki strax
Fyrr í kvöld ræddi fréttastofa við Hjördísi Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa Almannavarna sem sagði að ennþá væri verið að meta aðstæður. „Við erum að biðla til fólks að fara ekki strax af stað, gefa okkur tíma. Gefa bæði viðbragðsaðilum og vísindafólki tíma til þess að meta hvernig aðstæður eru. Það er mikilvægt,“ sagði hún.
„Það er kannski klisja að segja þetta, vinsamlegast ekki fara strax af stað, en við erum náttúrulega með eldgos í beinni útsendingu í þessu frábæra veðri. Við teljum samt ekki að það sé að fara neitt þannig við biðjum fólk um að fara ekki alveg stax af stað og bíða aðeins.“