Innlent

Varla komin aftur eftir að hafa flúið gosið fyrir tveimur árum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Ársæll Ármannsson, einn af eigendum Ísólfsskála.
Ársæll Ármannsson, einn af eigendum Ísólfsskála. Ívar Fannar Arnarsson

Eigendur Ísólfsskála, sem flúðu með allt lauslegt verðmæti af jörðinni vegna yfirvofandi hraunflóðs úr Geldingadölum fyrir tveimur árum, voru varla byrjaðir að koma sér fyrir aftur núna í sumar þegar enn eitt eldgosið brast á. Þeir vonast þó til að jörðinni stafi ekki ógn af nýjasta gosinu.

Þegar hraunið úr Geldingadalagosinu fyrir tveimur árum stefndi niður Nátthaga var því spáð að það gæti náð Suðurstrandarvegi innan tveggja vikna, sem þýddi að Ísólfsskáli væri í hættu. Jörðin er í eigu afkomenda síðustu bændanna, en í frétt Stöðvar 2 voru rifjaðar upp myndir sem við sýndum fyrir tveimur árum þegar þau Halldór Ármannsson og Stefanía Haraldsdóttir voru að bera lausamuni úr einum bústaðnum.

„Já, það virðist allt stefna í að þetta komi hérna niður, bara á næstu einni eða tveimur vikum, segja þeir,“ sagði Halldór í viðtali á Stöð 2 í júní 2021.

Stefanía Haraldsdóttir og Halldór Ármannsson við bústað sinn, Bjallabæ á Ísólfsskála, þann 23. júní árið 2021.Arnar Halldórsson

Þegar við renndum núna aftur í hlað á Ísólfsskála hittum við á Ársæl, bróður Halldórs, sem rifjaði upp flóttann fyrir tveimur árum.

„Það var bara gert ráð fyrir því að það færi hér allt undir hraun og það var bara um að gera að taka saman dótið og eigur, og það sem eigulegt var náttúrlega, og yfirgefa svæðið,“ segir Ársæll Ármannsson, einn af eigendum Ísólfsskála.

Og núna í sumar var komið að því að flytja inn aftur.

„Bara örstutt síðan við fórum að gera eitthvað meira hérna. Og þá byrjar jörðin að skakast,“ segir Ársæll.

Og svo færði Halldór bróðir hans honum ný tíðindi í fyrradag.

„Þá hringir hann í mig: Heyrðu, það er byrjað að gjósa.“

-Og það er svona um það leyti sem þið eru að koma ykkur fyrir aftur, þá kemur gosið aftur?

„Já, já.“

-En ætlið þið nokkuð að hætta við?

„Nei, en við áttum von á því að það myndi gjósa en við vissum náttúrlega ekkert hvar. Hvort það væri hérna aftur eða nær Vogum eða Reykjanesbraut. Þeir ætluðu nú að fara að byggja flugvöll þarna, var það ekki?“

Séð yfir Suðurstrandarveg og Ísólfsskála.Arnar Halldórsson

Ársæll vonast til að nýjasta gosið ógni ekki Ísólfsskála.

„Þetta er nú hinumegin við fjallahryggina hérna. Ég held ekki.“

-Þannig að þið munuð bara koma ykkur aftur fyrir og hafa það notalegt á Ísólfsskála?

„Já, já.

Og segist taka nýja gosinu með jafnaðargeði.

„Það þýðir ekkert annað. Við ráðum ekki yfir náttúrunni,“ segir Ársæll Ármannsson.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2 fyrir tveimur árum:


Tengdar fréttir

Myndi vilja leggja sig hjá kúnum í Nátthaga og láta hrauna yfir sig

Guðbergur Bergsson rithöfundur heimsótti æskuslóðir sínar á Ísólfsskála í dag þar sem fornleifafræðingar frá Minjastofnun vinna í kappi við hraunrennslið að kanna fornminjar. Sjálfur skoðaði Guðbergur nýja hraunið í Nátthaga þar sem hann var kúasmali á yngri árum.

Bjarga verðmætum áður en hraunið tekur bæinn

Landeigendur Ísólfsskála keppast nú við að bjarga lausamunum og öðrum verðmætum áður en hraun flæðir yfir jörðina. Á sama tíma er verið að stika nýja gönguleið á stað þaðan sem sést yfir eldgíginn og áformað að opna nýtt bílastæði.

Mergjaðar sögur Guðbergs frá æskuárum á Ísólfsskála

Guðbergur Bergsson rithöfundur hafði enga trú á því í sumar að hraunrennslið frá eldstöðinni í Geldingadölum myndi fara yfir Ísólfsskála. Fremur en að fjalla um eyðingu jarðarinnar kaus Guðbergur að segja okkur mergjaðar sögur frá æskuheimili sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×