Innlent

Sýknu­dómi hjúkrunar­fræðingsins á­frýjað

Árni Sæberg skrifar
Sigríður J. Friðjónsdóttir er ríkissaksóknari.
Sigríður J. Friðjónsdóttir er ríkissaksóknari. Vísir/Vilhelm

Sýknudómi Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðings á Landspítalanum, hefur verið áfrýjað af ríkissaksóknara. Hún var sýknuð af ákæru um að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild spítalans fyrir tveimur árum, þar sem ekki taldist sannað að hún hefði haft ásetning til þess.

Þetta staðfestir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi Steinu, í samtali við Vísi. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá.

Mikið hefur verið fjallað um mál Steinu en henni var gefið að sök að svipta konu á sextugsaldri með geðklofa, sem var sjúklingur á geðdeild 33A á Landspítalanum við Hringbraut, lífi með því að þröngva ofan í hana tveimur flöskum af næringardrykk 16. ágúst árið 2021. Steina hafi hellt drykknum upp í munn konunnar á meðan hún lét samstarfskonur halda henni þrátt fyrir að konan hefði gefið til kynna að hún vildi ekki drykkinn. Drykkurinn hafi hafnað í loftvegi konunnar sem olli því að hún kafnaði.

Olli dauða sjúklingsins

Fyrir dómi var það talið sannað að Steina hafi þröngvað tveimur næringardrykkjum ofan í sjúklinginn með því að hella honum ofan í munn hennar á meðan haldið var um hendur konunnar að fyrirskipan Steinu.

Afleiðingar þess hafi verið að drykkurinn hafnaði ofan í öndunarvegi konunnar, hindraði loftflæði um lungun og valdið því að hún kafnaði. Dánarorsökin hafi verið köfnun vegna innöndunar á ljósum vökva.

Enginn ásetningur

Héraðsdómur taldi framburð Steinu um hvað henni gekk til með því að gefa konunni drykkinn hafa verið stöðugan allt frá því að hún fékk stöðu sakbornings í málinu. Viðbrögð hennar fyrir og eftir atvikið renni stoðum undir að hún hafi ekki ætlað að svipta konuna lífi heldur bregðast án tafar við ástandi sem hún taldi sig hafa stjórn á.

Því var hún sýknuð vegna skorts á ásetningi en saksóknari hafði ákært hana fyrir manndráp af ásetningi frekar en gáleysi.


Tengdar fréttir

Segja konu sem lést á geð­deild hafa verið beitta of­beldi

Nýlegur sýknudómur yfir hjúkrunarfræðingi vegna dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans er dæmi um að fólk sé beitt ofbeldi á sjúkrahúsum og stofnunum, að sögn forsvarsmanna Geðhjálpar. Þeir gagnýna að enginn axli ábyrgð á andlátinu og því sem miður fer í heilbrigðiskerfinu.

Segir brýnt að Land­spítalinn dragi lær­dóm af málinu

Lögmaður hjúkrunarfræðings sem sýknuð var af ákæru um manndráp í opinberu starfi segir dóminn sem féll í héraðsdómi í dag afdráttarlausan og mikinn sigur. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir niðurstöðuna mikilvæga stéttinni allri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×