Lífið

Segist hafa stokkið of hratt í sam­bandið með Pete

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Tæpt ár er síðan parið hætti saman.
Tæpt ár er síðan parið hætti saman. EPA

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian, sagði frá því í nýjasta þætti raunveruleikaþáttanna The Kardashians, að hún hafi stokkið of hratt í ástarsamband með uppistandaranum Pete Davidson eftir skilnað hennar við rapparann Kanye West.

Kim Kardashian segir frá ástarsambandi sínu við uppistandarann í nýjasta þætti raunveruleikaþáttanna The Kardashians. Parið sleit sambandinu í ágúst í fyrra. Þá voru aðeins fimm mánuðir síðan Kardashian og West höfðu formlega skilið. 

Hún segir í samtali við systur sínar hafa stokkið of hratt í annað samband eftir skilnaðinn við West. Hún hafi leitt hugann að öðru, sem væri ekki rétt leið til þess að hlaupa í burtu frá því sem á gengi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.