Fenway Park breyttist í vatnsrennibrautagarð í gærkvöldi. Fjórða lota var við það að klárast í leik Boston Red Sox og New York Mets þegar rigningin setti mark sitt á leikinn í stöðunni 4-3 fyrir New York Mets. Fyrst var gert tveggja tíma hlé og reynt var að halda leik áfram en að lokum var leikurinn blásinn af og þráðurinn verður tekinn upp aftur í dag.
This is Fenway Park, not a scene from Titanic.
— Thomas Carrieri (@Thomas_Carrieri) July 22, 2023
(📹: @Boy9Danny)pic.twitter.com/AnQTg9C63u
Þrátt fyrir að allt hafi verið á floti inni á Fenway Park skemmtu áhorfendur sér konunglega og sumir dýfðu sér í pollinn.
Just a normal rain delay at Fenway Park… 🤣pic.twitter.com/f98sPNx8lr
— GENY Mets Report (@genymets) July 22, 2023
Það er þétt dagskrá í MLB-deildinni en þessi frestun gerir það að verkum að liðin mætast tvisvar á sama degi. Byrjað verður að klára síðustu fimm loturnar í leiknum sem var frestað en síðan mætast liðin aftur seinna um kvöldið. Það verða því spilaðar fjórtán lotur á Fenway Park en venjulegur leikur er níu lotur.
Lightning STRIKE! ⚡️🏟
— AccuWeather (@accuweather) July 22, 2023
Lightning illuminated the sky over Fenway Park last night, halting the Red Sox-Mets game. ⚾️
Credit: Andrew Marinaro via Storyful pic.twitter.com/KtLQwDu84S
I thought we could have played through it 🤣🤣🤣 pic.twitter.com/zl6Cop5864
— Justin Turner (@redturn2) July 22, 2023