Lífið

Veit hvað hún vill mest af öllu í af­mælis­gjöf

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Selena Gomez er alsæl á 31 ári.
Selena Gomez er alsæl á 31 ári. EPA-EFE/DAVID SWANSON

Selena Gomez átti af­mæli í gær en hún varð 31 árs gömul. Hún segist vera þakk­lát fyrir margt í lífinu og vita upp á hár hvað hún vill mest af öllu í af­mælis­gjöf.

Banda­ríska leik­konan skrifaði að­dá­endum sínum skila­boð á sam­fé­lags­miðlinum Insta­gram í færslu sem má sjá á hér fyrir neðan. Hún segist vera gríðar­lega þakk­lát fyrir það sem hún hefur gert í lífinu og nefnir sér­stak­lega Rare beauty snyrti­vöru­línuna sína.

Þá segist hún helst af öllu vilja að fólk leggi Rare Impact styrktar­sjóðnum lið en sjóðinn setti hún sjálf á lag­girnar og er honum ætlað að leggja ungu fólki lið í bar­áttunni fyrir bættu geð­heil­brigði. Leik­konan hefur ein­mitt verið opin­ská með eigin geð­heilsu í gegnum árin.

„Þökk sé ykkur höfum við opnað augu svo margra og bætt þjónustu fyrir ungt fólk sem glímir við eigið geð­heil­brigði. Þetta er mín raun­veru­lega ást­ríða í lífinu,“ segir leik­konan á ein­lægum nótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×