Lífið

Brady og Shayk rugla saman reitum

Máni Snær Þorláksson skrifar
Tom Brady og Irina Shayk rugluðu saman reitum um helgina.
Tom Brady og Irina Shayk rugluðu saman reitum um helgina. EPA/NINA PROMMER/ETTORE FERRARI

NFL-goðsögnin Tom Brady og ofurfyrirsætan Irina Shayk sáust fara heim saman um helgina. Þau eru sögð hafa eytt nóttinu saman og á Brady að hafa skutlað Shayk heim morguninn eftir.

Samkvæmt Page Six keyrði Brady á hótel Shayk og sótti hana þar síðasta föstudag. Vitni segja þau hafa síðan farið saman á heimili Brady. Morguninn eftir hafi Brady svo skutlað Shayk aftur á hótelið en sótt hana þangað síðar um daginn.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Brady er með ofurfyrirsætu þar sem hann var giftur Gisele Bündchen, kollega Shayk, í þrettán ár. Brady og Bündchen sóttu um skilnað í október á síðasta ári en þau eiga saman tvö börn, soninn Benjamin og dótturina Vivian Lake. Brady á svo annan son úr fyrra sambandi.

Shayk var áður í sambandi með leikaranum Bradley Cooper en þau hættu saman árið 2019 eftir fjögurra ára samband. Shayk og Cooper eiga saman dóttur og virðast vera í góðum samskiptum þar sem það sést oft til þeirra saman með henni.

Þá er Brady ekki fyrsta íþróttastjarnan sem Shayk er með en hún var í sambandi með Cristiano Ronaldo frá árinu 2009 til átsins 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.