Lífið

„Hún var nógu klikkuð til að segja já“

Máni Snær Þorláksson skrifar
Hulk Hogan fór á skeljarnar og spurði Sky Daily um að giftast sér. Um er að ræða þriðju trúlofun glímukappans.
Hulk Hogan fór á skeljarnar og spurði Sky Daily um að giftast sér. Um er að ræða þriðju trúlofun glímukappans. Instagram

Bandaríski fjölbragðaglímukappinn Hulk Hogan og jógakennarinn Sky Daily eru nú trúlofuð en rúmt ár er síðan þau byrjuðu saman. Hogan bar upp spurninguna á veitingastað í borginni Tampa í Flórída í Bandaríkjunum en um er að ræða þriðju trúlofun glímukappans.

„Hún var nógu klikkuð til að segja já,“ sagði Hogan er hann tilkynnti um trúlofunina í brúðkaupi hjá vinum sínum sem fram fór í Tampa um helgina. Hann þakkaði brúðhjónunum fyrir að koma sér aftur í samband við unnustu sína en þau hittust í fyrsta skipti í partíi fyrir rúmu ári síðan.

Hogan, sem er 69 ára gamall, segir í samtali við TMZ að hann hafi verið stressaður fyrir því að biðja Daily um að giftast sér. Einnig segir hann að Daily eigi þrjú börn og að hann elski þau öll. Sjálfur á Hogan tvö börn úr fyrsta hjónabandi sínu.

Þá sagði Hogan í hlaðvarpinu This Past Weekend sem kom út í gær að hann hefði hætt að drekka áfengi til að styrkja samband sitt og jógakennarans. Þau hafi bæði elskað að drekka saman á árum áður en sá tími væri liðinn núna.

Sem fyrr segir er þetta ekki í fyrsta skipti sem Hogan trúlofar sig. Hann var giftur Lindu Hogan á árunum 1983 til 2009 og eignaðist með henni börnin tvö. Linda gaf út ævisögu árið 2011 þar sem hún hélt því fram að Hogan hafi beitt hana ofbeldi. Hann þvertók fyrir það og stefndi henni fyrir meiðyrði.

Hogan var svo giftur Jennifer McDaniel ári eftir að hann og Linda skildu. Hjónaband Hogan og McDaniel varði í ellefu ár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×