Viðskipti innlent

Lokar fisk­vinnslu í Hafnar­firði og segir upp þorra starfs­fólks

Árni Sæberg skrifar
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims. Vísir/Vilhelm

Forsvarsmenn sjávarútvegsfyrirtækisins Brims hf. áforma að sameina botnfiskvinnslu Fiskvinnslunnar Kambs ehf. í Hafnarfirði við botnfiskvinnslu Brims hf. í Norðurgarði í Reykjavík. Áætlað er að hætta fiskvinnslu í Hafnarfirði í síðasta lagi 30. október næstkomandi og verður því flestum eða 31 starfsmanni Fiskvinnslunnar Kambs sagt upp störfum með samningsbundnum fyrirvara, frá og með 27. júlí.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brimi. Þar segir að samráð hafi verið haft við fulltrúa stéttarfélaga starfsmanna í aðdraganda þessa og að leitast verði við að finna starfsmönnum sambærileg störf í fiskvinnslu Brims í Norðurgarði í Reykjavík, eða önnur störf innan samstæðu Brims á næstu vikum. Þá verði þeim veitt ráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit.

Umtalsverðar sviptingar hafi verið í sjávarútvegi og á alþjóðamörkuðum frá því að Brim festi kaup á Fiskvinnslunni Kambi í október 2019. Heildaraflaheimildir í þorski á Íslandsmiðum hafI verið skertar um 23,5 prósent, samkeppnisstaða við erlendar fiskvinnslur um kaup á hráefni til vinnslu á innlendum fiskmörkuðum hafi verið erfið, verð hafi verið hátt og afkoman af vinnslu á því hráefni því engin. 

Auk þessa hafi orðið miklar kostnaðarhækkanir, bæði innanlands og erlendis, sem hafi haft áhrif á reksturinn.

„Með þessum aðgerðum er verið að bregðast við breyttum rekstraraðstæðum, styrkja botnfiskvinnslu Brims og þannig styðja við rekstur félagsins til lengri tíma,“ segir í lok tilkynningar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×