Innlent

Til­kynnt um grun­sam­lega menn með hnífa

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Lögreglan sinnti fjölda ölvunartengdra mála í nótt. Þá barst henni fjöldi tilkynninga um grunsamlegar mannaferðir. Mynd tengist frétt ekki beint.
Lögreglan sinnti fjölda ölvunartengdra mála í nótt. Þá barst henni fjöldi tilkynninga um grunsamlegar mannaferðir. Mynd tengist frétt ekki beint. Vísir/Kolbeinn Tumi

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í nótt. Tilkynningar bárust um grunsamlegar mannaferðir víða um bæinn, þar á meðal tilkynning um grunsamlega menn með hnífa. Þá var mikið af ölvunartengdum málum og nokkur slagsmál.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Fjöldi ökumanna var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum og vegna símanotkunar undir stýri.

Lögreglunni barst tilkynning um grunsamlega einstaklinga með hnífa. Lögregla fann þá ekki eftir leit. Þá barst fjöldi af tilkynningum almennt um grunsamlegar mannaferðir enda hefur innbrotahrinu herjað á höfuðborgarsvæðið.

Einstaklingur óskaði eftir aðstoð lögreglu og kvað hóp fólks hafa kastað glerflöskum í átt að sér en sloppið við að fá þær í sig. Lögreglan ræddi við meinta glerflöskugrýtara og var málið klárað á vettvangi.

Einnig var tilkynnt um þjófnað í íþróttamiðstöð. Málið er til rannsóknar en ekki kemur fram hvar sú íþróttamiðstöð er.

Of mikil ölvun

Lögreglu bárust nokkrar tilkynningar um einstaklinga í annarlegu ástandi sem voru til ama. 

Tilkynnt var um ölvaðan einstakling sem ráfaði á milli veitingastaða í miðborginni og áreitti gesti. Lögreglan ræddi við viðkomandi og gekk hann síðan leiðar sinnar. Annar einstaklingur var sakaður um hótanir í garð starfsfólks á veitingastað.

Þá voru nokkrir sem höfðu ekki gætt sín á Bakkusi. Einn slíkur hafði sofnað ölvunarsvefni utandyra og var vakinn af lögreglu. Annar ölvaður einstaklingur sem gat ekki valdið sér sjálfur fékk aðstoð við að koma sér heim. Sá þriðji var vistaður í fangaklefa vegna brots á áfengislögum.

Slagsmál á ölhúsum

Aðstoðar lögreglu var óskað vegna slagsmála á ölhúsi í Breiðholtinu og var einn fluttur á slysadeild vegna slagsmálanna.

Einnig barst lögreglu tilkynning um slagsmál á ölhúsi í miðbæ Hafnarfjarðar.

Þá varð umferðaróhapp þar sem ekið var á grindverk. Einn einstaklingur var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til frekari aðhlynningar en ekki er vitað hver meiðsli hans eru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×