Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin: Tryggvi klobbaði tvo KR-inga og Björn bjargaði FH

Sindri Sverrisson skrifar
Sigurður Egill Lárusson og Tryggvi Hrafn Haraldsson fagna einu af fjórum mörkum Vals í gær. Þeir skoruðu báðir í leiknum.
Sigurður Egill Lárusson og Tryggvi Hrafn Haraldsson fagna einu af fjórum mörkum Vals í gær. Þeir skoruðu báðir í leiknum. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Valsmenn tóku KR-inga í aðra kennslustund í sumar og FH vann Keflavík í spennuleik, í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi. Öll mörkin má nú sjá á Vísi.

Valur er sex stigum á eftir toppliði Víkings eftir að hafa rúllað yfir KR í gær, 4-0. Orri Hrafn Kjartansson skoraði fyrsta markið eftir góðan undirbúning Birkis Más Sævarssonar, og Valur komst í 2-0 þegar Tryggvi Hrafn Haraldsson klobbaði tvo varnarmenn KR og skoraði eftir þríhyrningsspil við Patrick Pedersen.

Pedersen skoraði svo sjálfur á 52. mínútu, eftir sókn Vals alveg frá markverðinum Frederik Schram, og fjórða markið kom í kjölfarið þegar Sigurður Egill Lárusson fylgdi á eftir stangarskoti Arons Jóhannssonar.

Klippa: Mörkin úr leik KR og Vals

FH vann sætan 3-2 útisigur gegn Keflavík. Björn Daníel Sverrisson kom FH yfir strax á sjöundu mínútu eftir sókn fram vinstri kantinn, og FH skoraði aftur eftir sendingu Vuk Oskars Dimitrijevic frá vinstri, þegar Úlfur Ágúst Björnsson skoraði í sínum síðasta leik fyrir Bandaríkjaför.

Stefan Ljubicic nýtti sér skelfileg mistök FH-inga til að minnka muninn á 60. mínútu og á 84. mínútu náði Keflavík að jafna, þegar Sami Kamel fylgdi á eftir skoti nýja mannsins, Roberts Hehedosh sem var nýkominn inn á.

Þá var þó enn tími fyrir Björn Daníel til að skora sitt annað mark, með skoti úr teignum eftir hornspyrnu, til að tryggja FH sigurinn.

Klippa: Mörkin úr leik Keflavíkur og FH


Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×