Tengir hjartagalla við það að geta ekki elskað Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 11. ágúst 2023 11:31 Tónlistarmaðurinn Fannar Ingi ræddi við blaðamann um nýjustu smáskífu sveitarinnar sem ber heitið Hjarta. Anna Maggý Hljómsveitin Hipsumhaps var að senda frá sér lagið „Hjarta“. Er um að ræða aðra smáskífu af væntanlegri plötu og er laginu lýst sem „indie-skotnum“ óð til einmana flagara sem veltir fyrir sér hvort það sé eitthvað að eigin heilsufari, nánar tiltekið hjartanu, þegar kemur að erfiðleikum í málefnum ástarinnar.
Lagið má heyra í spilaranum hér að neðan: Klippa: Hipsumhaps - Hjarta Hjartagalli, ást, heilsukvíði og lágt sjálfsálit Í fréttatilkynningu segir að hugmyndin að textanum eigi rætur sínar að rekja í hjartagalla sem Fannar greindist með þegar hann var lítill. „Það var þó aðeins kveikjan en í kjölfarið komu önnur viðfangsefni á teikniborðið eins og ást, heilsukvíði og lágt sjálfsálit sem hjálpuðu að móta karakterinn í laginu.“ Aðspurður hvort það hafi verið erfitt að sækja í gömul veikindi svarar Fannar: „Alls ekki. Ég hef alltaf verið undir góðu eftirliti og pæli lítið í þessu. Ég fór í aðgerð til London þegar ég var að verða þriggja ára sem heppnaðist vel. Húkkurinn og nokkur smáatriði í trommuvinnunni taka innblástur úr þessari staðreynd og almennu samtali um heilsukvíða en fleira var það ekki.“ Fannar Ingi greindist ungur með hjartagalla en segir það ekki hafa haft mikil áhrif á líf sitt. „Fyndin og feit“ niðurstaða Þá mætir hann við að sorgarsögur séu bannaðar á væntanlegri plötu. „Ég vildi alls ekki gera lag sem er eitthvað sob story. Það er bannað á þessari plötu. Atli Bollason, sem samdi textann með mér, kom síðan með þá pælingu að byggja ofan á textann með því að tengja hjartagalla við það að geta ekki elskað. Sem er frekar fyndin pæling. Þannig niðurstaðan er bara frekar fyndin og feit.“ Lagið er útsett af Fannari Inga og Kristni Þór Óskarssyni sem leikur einnig á gítar og bassa. Upptökur fóru fram í Sundlauginni, Studio Kisa og Stereoworld í Berlín. „Í skipsbrúnni er glæsileg áhöfn: Óskar Guðjónsson spilar á saxófón, Tómas Jónsson á hljómborð, Þorvaldur Halldórsson á trommur, Árni Kristjánsson hristir tambúrínu og Rakel Sigurðardóttir syngur bakraddir. Hljóðblöndun var í höndum Arnars Inga Ingasonar og Emil Thomsen hljómjafnaði. Viktor Weisshappel hannaði plötuumslagið og Baldvin Vernharðsson tók myndina.“ Viktor Weisshappel hannaði plötuumslagið fyrir Hjarta.Baldvin Vernharðsson/Viktor Weisshappel Ný plata og tónleikar Í fréttatilkynningu kemur einnig fram að þriðja breiðskífa Hipsuphaps heiti Ást & praktík og er hún væntanleg nú í haust. „Platan kemur út á streymisveitum þann 1. október en fyrst verður hún fáanleg á vínyl þann 15. september. Í tilefni vínylútgáfunnar verður haldin sérstök tónleikaröð á neðri hæð KEX Hostel þar sem fólki gefst tækifæri á að upplifa plötuna fyrst í gegnum lifandi flutning og tryggja sér nýpressað vínyleintak og meððí. Sérstakur kokteilaseðill verður hristur ofan í gesti þar sem hvert lag fær sitt eigið hanastél, innblásið af texta og tónum verksins.“ Nánari upplýsingar má finna hér.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Ástin og lífið Mest lesið Þriðja lag brúðgumans of klúrt fyrir athöfnina Lífið Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó Lífið Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Lífið Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Lífið „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Lífið Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Lífið Fleiri fréttir „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Reyna að eyða minningum um hvort annað í sturluðum dansi Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Sjá meira