Lífið

Hjóna­bandið sé á enda eftir orð­róm um fram­hjá­hald

Máni Snær Þorláksson skrifar
Natalie Portman og Benjamin Millepied giftu sig fyrir ellefu árum síðan. Nú virðist hjónabandið þó vera á enda.
Natalie Portman og Benjamin Millepied giftu sig fyrir ellefu árum síðan. Nú virðist hjónabandið þó vera á enda. EPA/DAVID SWANSON

Leikkonan Natalie Portman er sögð vera að skilja við eiginmann sinn, franska dansarann Benjamin Millepied. Portman skildi giftingarhringinn eftir heima á ellefu ára brúðkaupsafmæli þeirra á dögunum.

Fyrr í sumar kom upp orðrómur um að Millepied hafi haldið framhjá Portman með hinni 25 ára gömlu Camille Étienne, frönskum loftslagsaktívista. Á þeim tíma fullyrti tímaritið Us Weekly að Portman vildi halda hjónabandinu áfram þrátt fyrir framhjáhaldið. 

Heimildarmaður tímaritsins vildi meina að Natalie hafi talið að framhjáhaldið hafi verið til skamms tíma og ekki þýtt neitt fyrir Millepied. Hún hafi viljað sjá hvort hægt sé að byggja traustið aftur upp á ný til að halda fjölskyldunni saman. Portman og Millepied eiga saman tvö börn, tólf ára son og sex ára dóttur.

Það virðist þó vera sem það hafi ekki gengið því nýjustu heimildir tímaritsins herma að hjónabandið sé á enda. Portman sást án giftingarhringsins á viðburði í áströlsku borginni Sidney þann 4. ágúst síðastliðinn. Það vakti sérstaklega athygli því Portman og Millepied giftu sig á þeim degi fyrir ellefu árum síðan.

Portman og Millepied kynntust árið 2009 þegar þau unnu saman við gerð kvikmyndarinnar Black Swan en Portman lék aðalhlutverkið í þeirri mynd. „Hann var að kenna mér að dansa,“ útskýrði Portman í útvapsviðtali árið 2018. 

Það hafi verið spennandi, skemmtilegt og fallegt. Portman segir að í ferlinu hafi hún kynnst Millepied almennilega og hugsað að hann væri rétti maðurinn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.