Innlent

Ekki lengur frítt í Strætó á Menningar­nótt

Árni Sæberg skrifar
Borga þarf almennt fargjald í strætó á laugardaginn.
Borga þarf almennt fargjald í strætó á laugardaginn. Vísir/Vilhelm

Almennt fargjald verður rukkað í strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu á Menningarnótt, sem haldin verður í miðbæ Reykjavíkur á laugardaginn. Undanfarin ár hefur verið frítt í Strætó.

Í fréttatilkynnigu frá Strætó bs segir að borga þurfi almennt fargjald í Strætó á Menningarnótt en á móti hafi verið ákveðið að fjölga ferðum og bæta þar með þjónustu viðskiptavina þennan dag, en leið 1 aki til að mynda á tíu mínútna fresti frá klukkan 10 til 18.

„Með þessu er verið að reyna að anna eftirspurn eftir bestu getu en ljóst er að flutningsgeta Strætó getur aldrei tekið á móti þeim gríðarlega fjölda sem sækir þennan viðburð. Á klukkutíma má áætla að Strætó geti tekið á móti 3200 manns úr öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins.“

Öllum vögnum beint að Sæbraut og skutlið heim verður frítt

Í tilkynningu segir jafnframt að leiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu verði rofið kl. 22:30 og öllum tiltækum vögnum beint að Sæbraut við Sólfarið. Frá Sólfarinu verði ekið í öll hverfi á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 23:00 til 01:00 og ekkert kosti ekkert í þessar ferðir. 

Næturstrætó taki svo við eftir klukkan 01 og aki eftir sínum hefðbundnu leiðum innan Reykjavíkur. Borga þurfi næturgjald í næturstrætó.

Skutlur aka akandi í miðbæinn

Þá muni skutlur á vegum Strætó, í boði Reykjavíkurborgar, aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju frá klukkan 07:30 til 01:00. „Fólk á bíl er hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll. Það kostar ekkert í skutluþjónustuna.“

Þá segir að fólk sé hvatt til að fylgjast vel með á rauntímakorti á straeto.is eða í Klappinu. Raskanir gætu orðið á tímatöflum og leiðum bæði vegna götulokana og umferðar. Hægt sé að skoða tímatöflur fyrir allar leiðir á Menningarnótt á straeto.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×