Menning

Ariana Katrín nýr verk­efna­stjóri miðlunar

Máni Snær Þorláksson skrifar
Ariana Katrín Katrínardóttir hefur verið ráðin sem verkefnastjóri miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur.
Ariana Katrín Katrínardóttir hefur verið ráðin sem verkefnastjóri miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur. Aðsend

Ariana Katrín Katrínardóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra miðlunar Listasafns Reykjavíkur. Katrín mun annast samstarf við skóla, móttöku skólahópa og aðra miðlun til barna, ungmenna og fjölskyldna.

Fram kemur í tilkynningu að Ariana Katrín muni hefja störf hjá safninu um næstu mánaðarmót. Ariana Katrín er með meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Þar lagði hún sérstaka áherslu á safnfræðslu. Lokaritgerð hennar fjallaði um listsmiðjur með grunnskólanemendum í safnaumhverfi.

Einnig hefur Ariana Katrín numið myndlýsingar við Academy of Art University í San Francisco í Bandaríkjunum, listfræði við Háskóla Íslands og myndlist við Instituto Lorenzo de Medici í Flórens á Ítalíu.

Ariana Katrín hefur starfað við sérkennslu hjá Brúarskóla, almenna kennslu í Flataskóla, sem leiðbeinandi á leikskólanum Grænuborg og deildarstjóri á leikskólanum Gullborg. Á þeim síðastnefnda stýrði hún jafnframt listasmiðju og hlaut skólinn í hennar tíð Menningarfána Reykjavíkurborgar fyrir framúrskarandi menningarstarf. 

Þá hefur hún stýrt námskeiðum um sköpun í leikskólastarfi fyrir leikskólakennara og komið að ólíkum listasmiðjum og sérverkefnum á ýmsum stöðum. Auk þess hefur hún starfað sjálfstætt sem myndskreytir og hönnuður.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.