Innlent

Fallist á lengra gæslu­varð­hald: Vonast eftir niður­stöðu krufningar um mánaða­mótin

Árni Sæberg skrifar
Lögreglan á Selfossi hefur málið til rannsóknar.
Lögreglan á Selfossi hefur málið til rannsóknar. Vísir/Vilhelm

Landsréttur féllst í dag á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um manndráp í heimahúsi á Selfossi. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 27. apríl síðastliðnum og mun sæta því áfram til 31. þessa mánaðar hið skemmsta.

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði þann 11. ágúst síðastliðinn að maðurinn skyldi sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til föstudagsins 25 ágúst næstkomandi. Lögreglustjóri Suðurlands hafði gert kröfu um gæsluvarðhaldið yrði framlengt um fjórar vikur, eða til 8. september næstkomandi.

Úrskurður þessi var kærður til Landsréttar sem hefur nú úrskurðað að maðurinn sæti gæsluvarðhaldi til fimmtudagsins 31. ágúst. Þetta segir í tilkynningu á vef lögreglunnar.

Rannsókn að mestu lokið

Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir í samtali við Vísi að farið hafi verið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli brýnna rannsóknarhagsmuna. 

Í lögum um meðferð sakamála segir að ekki megi halda mönnum í gæsluvarðhaldi lengur en í tólf vikur nema brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess eða mál hafi verið höfðað gegn honum.

Þá segir að brýnir rannsóknarhagsmunir geti verið vegna þess að ætla megi að sakborningur muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni.

Sveinn Kristján segir að rannsókn málsins sé svo gott sem lokið að öðru leyti en því að beðið sé eftir lokaniðurstöðu krufningar.

Vonast eftir niðurstöðu um mánaðamótin

Sveinn Kristján segir að Lögreglan á Suðurlandi vonist til þess að lokaniðurstaða muni liggja fyrir um mánaðamótin eða fyrr. Niðurstaðan sé gríðarlega mikilvægt gagn í málinu.

Þá segir hann að verði engar gríðarlegar breytur í lokaniðurstöðunni frá bráðabirgðaniðurstöðu þá muni ránnsókn málsins ljúka fljótlega eftir að þær liggja fyrir.

Málið fari þá á borð héraðssaksóknara, sem lögreglan hafi verið í góðu samstarfi við við rannsókn málsins.


Tengdar fréttir

Brýnir hagsmunir halda þeim grunaða á Selfossi bak við lás og slá

Lögreglustjórinn á Suðurlandi gerði í dag enn einu gæsluvarðhaldskröfuna fyrir héraðsdómi yfir manni sem grunaður er um manndráp. Maðurinn var handtekinn 27. apríl síðastliðinn en krafan er lögð fram á grundvelli brýnna rannsóknarhagsmuna þar sem endanleg niðurstaða krufningar liggur ekki fyrir.

Krefjast fjögurra vikna á­fram­haldandi varðhalds vegna mann­dráps á Sel­fossi

Lögreglan á Suðurlandi hefur óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir karlmanni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið ungri konu að bana á Selfossi í lok apríl. Von er á niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands síðar í dag. Ellefu vikur eru nú liðnar frá því að maðurinn var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×