Sem frægt var smellti Luis Rubiales, forseti spænska knattspyrnusambandsins, kossi á munn Hermosos þegar hún tók við verðlaunum sínum eftir úrslitaleik HM. Þar vann Spánn England með einu marki gegn engu.
Eftir að hafa upphaflega sagt öllum sem gagnrýndu hann til syndanna fann Rubiales sig knúinn til að biðjast afsökunar á kossinum fræga.
Hermoso sagðist fyrst ekkert hafa verið fyrir kossinn gefin en skömmu síðar kvað við annan tón og hún afsakaði hegðun Rubiales.
„Þetta gerðist bara í hita augnabliksins sökum þeirrar gríðarlegu ánægju sem fylgir því að vinna heimsmeistaratitilinn,“ segir Hermoso í yfirlýsingu sem AFP fréttaveitunni barst frá spænska knattspyrnusambandinu.
„Við forsetinn eigum í góðu sambandi. Hegðun hans, gagnvart okkur öllum, hefur verið framúrskarandi. Þetta var bara hans leið til þess að sýna ástúð og þakklæti.“
Samkvæmt frétt miðilsins Revelo grátbað Rubiales Hermoso einnig um að koma fram í myndbandi þar sem hann baðst afsökunar á kossinum. Hún neitaði því.
Þá leitaði Rubiales til þjálfara spænska liðsins, Jorge Vilda, og fékk hann með sér í lið. Á leiðinni heim frá Ástralíu talaði Vilda þrisvar sinnum við fjölskyldu Rubiales til að reyna að sannfæra hana um að koma fram í myndbandinu. Hermoso gaf sig hins vegar ekki og Rubiales var einn í afsökunarmyndbandinu sem var tekið á flugvelli í Doha.
Vilda er sjálfur kominn í klandur eftir að myndband af honum þar sem hann sést klípa í brjóst samstarfskonu sinnar birtist á samfélagsmiðlum.
Vilda er afar umdeildur en frægt er þegar fimmtán leikmenn spænska landsliðsins skrifuðu undir bréf þar sem þjálfunaraðferðir hans voru harðlega gagnrýndar og sagt að hann hefði slæm áhrif á andlega og líkamlega heilsu leikmanna. Vilda hefur þó alltaf notið stuðnings Rubiales.