Lífið

Kelis hristir mjólkur­hristingana ei meir fyrir Murray

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Kelis og Bill Murray eru hætt saman samkvæmt breskum slúðurmiðlum.
Kelis og Bill Murray eru hætt saman samkvæmt breskum slúðurmiðlum. Gett/Grafík

Ástarsambandi Hollywood-leikarans Bill Murray og söngkonunnar Kelis er lokið eftir aðeins tvo mánuði.

Hin 44 ára Kelis á að hafa bundið enda á sambandið við hinn 72 ára gamla Murray. 

Að sögn heimildamanna var það ekki ósætti sem leiddi til sambandsslitanna heldur hafi sambandið einfaldlega siglt í strand. Þau ætli sér því að vera áfram vinir.

„Þau eru bæði með þétta dagskrá og eftir hvirfilbylsrómans ákváðu þau að fara hvort í sína áttina,“ sagði heimildamaður við The Sun.

Greint var frá sambandi parsins í júní eftir að sást til þeirra saman í Lundúnum. Parið hafði fyrir það kynnst í Bandaríkjunum þar sem neistar kviknuðu. Tæplega þrjátíu ára aldursmunur þeirra vakti þá töluverða athygli.

Þá kom einnig fram að þau deildu þeirri hræðilegu lífsreynslu að hafa misst maka. 

Eiginmaður Kelis, ljósmyndarinn Mike Mora, lést aðeins 37 ára gamall í fyrra eftir marga mánaða baráttu við magakrabbamein. Þá lést hin 54 ára Jennifer Butler, búningahönnuður og eiginkona Murray til 25 ára, skyndilega árið 2021.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.