Heðin, sem hefur störf á föstudag, hefur undanfarin átta ár starfað sem framleiðslustjóri Hiddenfjord í Færeyjum. Á árunum 2004 til 2015 var hann vinnslustjóri Kaldbaks í Færeyjum og hafði þar umsjón með vörumerkinu Viking Seafood, sem síðar varð Bakkafrost, og framleiðslu silungs og lax.
Þar á undan starfaði Heðin fyrir Smoltstöðina í Svínoy þar sem hann hafði umsjón með ferskvatnseldi um sex ára skeið.
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, segist í tilkynningu gríðarlega ánægður með ráðningu Heðins.
„Það er stórt skref fyrir okkur að fá jafn reynslumikinn aðila og hann til starfa. Við bindum miklar vonir við að hann muni leggja mikið til í þeim vexti sem félagið stefnir að á næstu árum. Hann hefur átt stóran þátt í þeim góða árangri sem Hiddenfjord í Færeyjum hefur náð, en það er eitt frambærilegasta laxeldisfyrirtækið í Færeyjum að okkar mati. Við hjá First Water gerum okkur grein fyrir því að mannauðurinn er eitt það allra verðmætasta sem félag eins og okkar getur átt og Heðin verður lykilþáttur í þeirri þekkingu sem við erum að byggja upp innan félagsins,“ segir Eggert.
First Water starfrækir seiðaeldisstöð við Hveragerði og áframeldisstöð við Þorlákshöfn.
„Verkefnið nýtur afburða aðstæðna í Ölfusi þar sem gott aðgengi er að landrými, umhverfisvænni orku og ekki síst tæru ferskvatni og sjóvatni við kjörhitastig fyrir laxeldi. Félagið hefur lokið umhverfismati og hefur öðlast öll leyfi til að ala árlega um 8 þúsund tonn af laxi,“ segir í tilkynningunni.
Markmið félagsins sé að framleiðslugeta þess verði á endanum um 43 þúsund tonn á ári. Meðal hluthafa First Water eru frumkvöðlar, stjórnendur og starfsmenn, auk fjárfesta. Stærsti hluthafi First Water er fjárfestingafélagið Stoðir hf. með 40% hlut.