Erlent

Fimm við­gerðar­menn látnir eftir að hafa orðið fyrir lest á Ítalíu

Atli Ísleifsson skrifar
Slysið varð í Brandizzo, nærri stórborginni Torinó.
Slysið varð í Brandizzo, nærri stórborginni Torinó. AP

Fimm verkamenn, sem unnu að viðgerð á lestarteinum á lestarstöðinni í bænum Brandizzo, létust þegar þeir urðu fyrir flutningalest í nótt.

ANSA segir frá því að lestin, sem hafi verið á leið milli Mílanó og Torínó, hafi verið á um 160 kílómetra hraða þegar slysið varð.

Paolo Bodoni, bæjarstjóri í Brandizzo, segir að um mikinn harmleik sé að ræða. Ekki sé hægt að útiloka að um yfirsjón hafi verið að ræða þegar kemur að því að miðla upplýsingum milli viðgerðarteymisins og lestarstjóra.

Fram kemur að tveir samstarfsmenn hinna látnu, þar með talinn verkstjórinn, hafi sloppið ómeiddir.

Rannsókn er hafin á orsökum slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×