Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Vekjarinn er stilltur 6:45 en oftar en ekki er ég að vakna um sexleytið. Á yngri fullorðins árum var ég algjög B-týpa en í dag á ég á auðvelt með að vakna ferskur að morgni sem og að vaka lengur ef á þarf að halda.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
Daginn byrja ég á að leggjast aftur uppí rúm en þá er Shakti-gaddadýnan komin undir mig, ligg ég á henni í um 10 mínútur og oftar en ekki er ég með 5-10 mínútna jóga-nidra hugleiðslu í eyrunum.
Vel gaddaður fer ég svo fram múr og laga alvöru uppáhellt kaffi.
Undirbúningur fyrir daginn er kominn á fullt og fer ég yfir daginn framundan meðan beðið er eftir að kaffið verði klárt.
Við tekur svo gæðastund með eiginkonunni þar sem setið er saman í ró og næði og kaffi og kítló gosvatn er drukkið í mestu makindum. Fyrir nokkrum árum tamdi ég mér þann sið að miða við að fasta/borða samkvæmt 16/8, þar sem ég borða ekkert fram að hádegi og reyni að hætta að borða fyrir klukkan átta á kvöldin.
Vinnudagurinn er samt formlega hafinn um leið og ég fer á fætur. Þegar ég keyri svo af stað frá Skaganum í höfuðstaðinn, rúmlega átta, þá nota ég tímann á leiðinni mjög gjarnan í símtöl, vinnutengd og persónuleg.“
Á skalanum 1-10 hversu mikill prakkari varstu sem gutti?
„Ég var mjög uppátækjasamur sem krakki og leiksvæðið náði frá vita niður á Breið upp að Akrafjalli, en mestum tíma var samt varið á Merkurtúninu sérstaklega á sumrin. Það var ansi margt sem maður tók sér fyrir hendur og brallaði með vinunum.
Við strákarnir voru mjög duglegir við að ýta hvor öðrum áfram og man hvor aðra í að gera eitthvað sem var ekki hættulaust. Eitt skiptið klifraði ég upp sementsstrompinn sáluga og náði upp að rauðastrikinu, en þegar ég kom niður þurfti að taka vel til fótanna þar sem starfsmenn í Sementinu höfðu tekið eftir mér og voru á leið að strompnum til að sækja mig. Þannig að vinur minn sem var með mér, slapp við að þurfa að reyna fara lengra en ég og var þetta aldrei aftur reynt, en útsýnið var stórkostlegt.
Ég var þó aldrei stríðinn og hef alla tíð borið virðingu fyrir öðrum, þannig að ég átti mjög erfitt með að gera prakkarastrik sem fóru yfir strikið og ég vissi að myndu hafa afleiðingar fyrir þá sem urðu fyrir þeim, eða þá bara mig sjálfan.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Sumarið er tíminn í olíunni og því búið að vera mikið um að vera þessa dagana, enda allt á yfirsnúningi á Íslandi. Auk þess hefur mikill tími farið í áreiðinleikakönnun sem við hjá Skeljungi erum að vinna vegna sölu á Skeljungi inní nýtt félag sem mun bera nafnið Styrkás.
Við hjónin verðum fimmtug á árinu og ákváðum við að þetta yrði ferða árið mikla.
Við fórum með fjölskylduna til Ítalíu í vor og í vetur er verið að skipuleggja ferðir í tilefni áfangans með fjölskyldu og vinum og fer skemmtilegur tími að skipuleggja þær ferðir.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Fyrst og fremst nota ég Outlook til að skipuleggja mín daglegu störf. En aðaltólið sem ég nota til að ná utan um reksturinn hjá okkur og skipuleggja verkefni og starfsemi félagsins er EOS-aðferðarfræðin. Við notumst að fullu við þessa aðferðafræði og er hún að nýtast okkur mjög vel, en allt utan um hald fer síðan fram í online kerfi sem heitir Ninety.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Markmiðið á hverjum degi er að fara að sofa áður en ég verð of þreyttur. En ef ég horfi í klukkan þá er markmiðið að koma sér í beddann fyrir klukkan ellefu á kvöldin.“