Enski boltinn

Lagði sitt mat á um­deild at­vik úr stór­leik helgarinnar

Aron Guðmundsson skrifar
Úr leik Arsenal og Manchester United í gær
Úr leik Arsenal og Manchester United í gær Vísir/EPA

Arsenal og Manchester United áttust við um nýliðna helgi í stórleik 4.umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Svo fór að Arsenal vann leikinn með þremur mörkum gegn einu, tvö mörk á síðustu andartökum leiksins tryggðu Skyttunum sigurinn. 

Fjölmörg umdeild atvik komu upp í leiknum en Sky Sports fékk Dermot Gallagher, fyrrum dómara í ensku úrvalsdeildinni, til þess að leggja sitt mat á umrædd atvik. 

Fyrsta atvikið sem hann fór yfir var aðdragandi annars marks Arsenal í leiknum þegar að Declan Rice kom Skyttunum 2-1 yfir í uppbótatíma seinni hálfleiks. 

Í aðdraganda marksins áttust Gabriel, leikmaður Arsenal og Jonny Evans varnarmaður Manchester United, við inn í vítateignum og vildu einhverjir meina að Gabriel hefði brotið á Evans og vildu að mark Rice stæði ekki. 

„Þetta hefði geta verið brot á hinn veginn,“ sagði Gallagher um atvikið þar sem að Evans hafi hrint Gabriel frá sér að lokum. „Þetta er erfið ákvörðun að taka en dómari leiksins er með fullkomið sjónarhorn á þetta. Hann hefði vel geta dæmt brot á Evans sem hefði þá orðið að vítaspyrnu fyrir Arsenal. 

Þá fór Gallagher einnig yfir atvik þar sem að Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United sagði að Gabriel, varnarmaður Arsenal, hefði brotið á Rasmus Hojlund, sóknarmanni Manchester United innan vítateigs. 

„Það eru klárlega líkamleg átök þeirra á milli en varnarmaðurinn er bara of sterkur. Hojlund ýtir boltanum of langt frá sér og Gabriel heldur sinni stöðu, hann gerir ekkert rangt,“ segir Gallagher um atvikið. „Við sjáum svona atvik mjög oft og ég hefði verið agndofa ef Anthony Taylor (dómari leiksins) hafði dæmt brot á þetta.“

Átök milli Gabriel og Hojlund

Gallagher fór einnig yfir rangstöðu sem dæmd var á Alejandro Garnacho, sóknarmann Manchester United eftir að hann kom boltanum í netið undir lok venjulegs leiktíma og virtist vera að tryggja Rauðu djöflunum 2-1 sigur. 

„Það er á svona stundum sem við sjáum til hvers við erum með VAR. Ef þeir teikna línur yfir völlinn og segja það rangstöðu, þá er það bara rangstaða. Þegar að þeir teiknuðu línurnar á völlinn sá maður að Gabriel hefur ekki hallað sér það langt fram til að teljast samhliða Garnacho.“

Nú tekur við landsleikjahlé í enska boltanum. Arsenal er sem stendur í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með tíu stig, Manchester United er í 11. sæti með 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×