Kyle Walker skoraði í jafntefli gegn Úkraínu | Svíþjóð valtaði yfir Eistland

Andri Már Eggertsson skrifar
England v Ukraine: Group C - UEFA EURO 2024 Qualifying Round
Getty

Úkraína og England skildu jöfn þegar liðin mættust í undankeppni EM í dag. England er í efsta sæti C-riðlis með 13 stig.

Oleksandr Zinchenko kom Úkraínu yfir á 26. mínútu. Fimmtán mínútum seinna jafnaði Kyle Walker leikinn og staðan var 1-1 í hálfleik. Það gerðist lítið marktækt í seinni hálfleik og leikurinn endaði með 1-1 jafntefli.

 

England er í efsta sæti í C-riðli með 13 stig og Úkraína er í öðru sæti sjö stig. Í kvöld mætast síðan Norður Makedónía og Ítalía í sama riðli. 

Svíþjóð var ekki í neinum vandræðum með Eistland. Leikurinn endaði með 0-5 sigri þar sem Dejan Kulusevski skoraði og var maður leiksins. 

Í I-riðli gerðu Andorra og Hvíta-Rússland markalaust jafntefli. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira