Meistararnir enn með fullt hús stiga eftir endur­komu­sigur

Aron Guðmundsson skrifar
Erling Braut Haaland skoraði þriðja mark City í dag.
Erling Braut Haaland skoraði þriðja mark City í dag. Justin Setterfield/Getty Images

Englandsmeistarar Manchester City unnu góðan 3-1 útisigur gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Þrátt fyrir mikla yfirburði gestanna voru það heimamenn í West Ham sem tóku forystuna með marki frá James Ward-Prowse á 36. mínútu og staðan var því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Gestirnir voru þó ekkert að slóra í síðari hálfleik því Jérémy Doku jafnaði metin fyrir City eftir aðeins nokkrar sekúndur.

Bernanrdo Silva kom meisturunum svo í forystu á 76. mínútu áður en norska markamaskínan Erling Braut Haaland gulltryggði sigurinn tíu mínútum síðar.

Manchester City er nú með 15 stig af 15 mögulegum eftir fimm umferðir, fimm stigum meira en West Ham sem situr í sjötta sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira