Hákon fiskaði víti í sigri Lille

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson og félagar hans unnu góðan sigur í Sambandsdeild Evrópu í dag.
Hákon Arnar Haraldsson og félagar hans unnu góðan sigur í Sambandsdeild Evrópu í dag. getty/ANP

Riðlakeppni Sambandsdeildarinnar hófst í dag þegar Lille fékk Olimpija í heimsókn í A-riðli. Hákon var í byrjunarliði Lille. Hann var tekinn af velli á lokamínútu leiksins.

Undir lok fyrri hálfleiks braut Agustin Doffo á Hákoni innan teigs og víti var dæmt. Eftir skoðun á myndbandi var dómurinn staðfestur. Kanadamaðurinn Jonathan David tók spyrnuna og skoraði af öryggi.

Í uppbótartíma bætti Yusuf Yazici öðru marki við og gulltryggði sigur Lille. Hann slapp þá inn fyrir vörn Slóvenanna og skoraði af öryggi.

Klippa: Lille 2-0 Olimpija Ljubljana

Hákon hefur spilað átta leiki með Lille síðan hann kom til liðsins frá FC Kaupmannahöfn í sumar.

Mörkin úr leik Lille og Olimpija Ljubljana má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira