Viðskipti innlent

Ólafur segir ráð­leggingar Ás­­­geirs að­hláturs­efni

Jakob Bjarnar skrifar
Ólafur spyr hvar í heiminum það myndi gerast að seðlabankastjórar bjóði upp á ráðleggingar til lánþega, hvernig best sé að þeir hagi sínu lánasafni?
Ólafur spyr hvar í heiminum það myndi gerast að seðlabankastjórar bjóði upp á ráðleggingar til lánþega, hvernig best sé að þeir hagi sínu lánasafni? vísir/vilhelm

Hagfræðingurinn Ólafur Margeirsson telur Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóra vera úti á túni með ráðleggingar sínar til húsnæðiseigenda og lánasýslu þeirra.

Ásgeir hvetur lántakendur til að skoða þá lánsmöguleika sem til staðar eru varðandi lánsskilmála; tímalengd lána, greiðslubyrgð þeirra, mögulega blanda lánum og fara í eitthvað verðtryggt.

Þetta er algjör viðsnúningur hjá seðlabankastjóra sem ráðlagði fólki fyrir nokkrum misserum að forðast verðtryggð lán. Hann segir að í mikilli verðbólgu eins og nú er breytist allar forsendur hratt.

Ólafur fer um þessar ráðleggingar Ásgeirs hinum háðuglegustu orðum:

„Í fréttum er það helst að Christine Lagarde, seðlabankastjóri Evrópu, ráðfærði íbúum evrulandanna hvers konar íbúðalán þeir skyldu taka… Augljóslega dytti Lagarde þetta aldrei í hug, enda ekki í hennar verkahring né viðeigandi.“

Ólafur segir að hann og félagi hans, sem býr í einu Evrulandanna, hafa verið að hlæja að þessum möguleika. Nánast syndsamlegt megi heita að seðlabankastjóri Íslands telji það í sínum verkahring að ráðfæra fólki hvernig lán það skuli taka.

„Sérstaklega er það undarlegt ef ráðleggingarnar ýta undir að lántakar komi sér undan áhrifunum af hærri stýrivöxtum. Því augljóslega er það svo að því meira sem verðtryggð lán eru notuð, því minni áhrif hafa vaxtabreytingar Seðlabankans, og því meira þarf að hækka vexti þegar allt kemur til alls.“

Ólafur segir vert að hafa í hug að það sé bókstaflega tilgangurinn með stýrivaxtabreytingum að hafa áhrif á greiðslubyrði lántaka með það að markmiði að ná verðbólgu niður. „Að seðlabankastjóri veiti svo fólki ráðgjöf um hvernig sé best að komast undan slíkum stýrivaxtabreytingum er undarlegt í besta falli og viðvaningslegt í versta falli,“ segir Ólafur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×