Glötuð færi kostuðu Chelsea sigurinn enn á ný

Siggeir Ævarsson skrifar
Ollie Watkins var hetja Aston Villa í dag.
Ollie Watkins var hetja Aston Villa í dag. Vísir/Getty

Chelsea tók á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag. Chelsea hefur byrjað tímabilið afar illa með fimm stig í fyrstu fimm leikjunum og bættu engu stigi í sarpinn í dag.

Ollie Watkins skoraði eina mark leiksins á 73. mínútu en Chelsea léku manni færri frá 58. mínútu þegar Malo Gusto fékk rautt spjald. Var þetta í fyrsta sinn í 30 ár sem Aston Villa vinnur tvo deildarleiki í röð gegn Chelsea. 

Ógæfa Mauricio Pochettino og lærisveina hans heldur áfram en liðið hefur ekki byrjað tímabil jafn illa síðan 1978.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira