Hamingjuvikan í vinnunni er núna: Snjóboltinn er farinn að rúlla Rakel Sveinsdóttir skrifar 27. september 2023 07:01 Hamingjuvikan í vinnunni, International Week of Happiness at Work stendur nú yfir. Héðinn Sveinbjörnsson hefur talað fyrir því að íslenskir vinnustaðir taki þátt og á morgun mun Atvinnulífið taka dæmi um eitt þeirra fyrirtækja sem er að gera það. Vísir/Vilhelm Alþjóðlega hamingjuvikan í vinnunni 2023 er þessa vikuna, eða International Week of Happiness at Work. Þessi vika var fyrst kynnt til sögunnar árið 2018 og því ekki langt um liðið auk þess sem heimsfaraldurinn skall á í millitíðinni.
En snjóboltinn er farinn að rúlla segir Héðinn Sveinbjörnsson hamingjustjóri, sem síðustu misseri hefur talað fyrir því að sem flestir vinnustaðir taki þátt í hamingjuvikunni. Í dag og á morgun fjallar Atvinnulífið um alþjóðlegu hamingjuvikuna árið 2023. Í dag segjum við frá því hvaða hamingjutengdu viðburðir eru í boði frítt á vegum Héðins, en á morgun frá því hvað fjölmennur íslenskur vinnustaður er að gera fyrir sitt starfsfólk í tilefni vikunnar. Vinnan og hamingja Héðinn segir að þótt hann hvetji vinnustaði til að taka þátt í þessari alþjóðahamingjuviku vinnunnar, sé ekki þar með sagt að fyrirtæki séu ekki að gera margt allt árið um kring til að auka á vellíðan og ánægju starfsmanna sinna. Ég heyri stundum ákveðinn misskilning þessu tengt. Ég er kannski að tala við fyrirtæki um að taka þátt í þessari viku og fæ svarið „Já en við erum alltaf að gera eitthvað fyrir okkar fólk. Sem er auðvitað frábært. Að standa fyrir alþjóðlegri hamingjuviku í vinnunni snýst hins vegar um að atvinnulífið staðfesti þá meðvitund sína að það að starfsfólkið sé hamingjusamt í vinnunni, skipti atvinnulífið gríðarlega miklu máli.“ Sem dæmi nefnir Héðinn að alls staðar séu vinnustaðir að keppast að því að auka á helgun starfsmanna, eða engagment eins og það nefnist á ensku. „Á heimsvísu er þessi helgun starfsmanna að mælast 23%, á Íslandi 26%. Þetta eru ekki háar tölur. Hvað veldur?“ spyr Héðinn og bendir á að þarna sé strax sterk vísbending um það hversu mikið vinnustaðir geta uppskorið af því að vinna út frá því að byggja upp hamingju starfsfólks. Sjálfur hefur hann fengið ýmsa fyrirlesara úti í heimi til að bjóða Íslendingum upp á áhugaverða fyrirlestra í þessari viku. Þessa fyrirlestra er hægt að taka þátt í á streymi í gegnum ráðgjafafyrirtæki Héðins, Handson. „Þarna er ég búinn að fá aðila sem eiga það sameiginlegt að vera statt og stöðugt í því að vinna að hamingju starfsfólks eða öðru því tengt. Allt frá því að tala um uppbyggingu hamingju á vinnustað, að tala um mikilvægi þakklætis yfir í að segja frá skemmtilegum hamingjumælikvarða sem búið er að búa til fyrir starfsfólk til að gera þeim betur kleift að láta vita af því með einföldum hætti hversu ánægð eða hamingjusöm fólk er hverju sinni.“ Þetta er annað árið í röð sem Héðinn er fyrir alvöru að tala um það upphátt og hvetja vinnustaði til að taka þátt í hamingjuvikunni með einhverjum hætti. „Fyrst þegar ég nefndi þetta rakst ég bara á vegg. Enda ekkert skrýtið því þá var Covid í gangi. En í fyrra fór ég formlegri af stað og mín sýn er sú að á Íslandi verði aukin þátttaka sjálfsögð á hverju ári. Þar sem vinnustaðir leyfa sér hreinlega að setja fókusinn á hamingju starfsfólks og mikilvægi hamingjunnar þessa viku sem alþjóðlega hamingjuvikan stendur yfir.“ Hefur þér fundist íslensk fyrirtæki vera í auknum mæli að kveikja á perunni? „Nei ég get nú ekki sagt að það sé að gerast mjög hratt,“ segir Héðinn og hlær. Þetta er svona eins og í ljóðinu Fjallgangan. Urð og grjót. Upp í mót. Ekkert nema urð og grjót….“ Héðinn segist samt sannfærður um að þetta muni breytast smám saman. Taka þurfi tillit til þess að þessi alþjóðlega vika sé enn frekar ný á nálinni. „Mér finnst samt mjög gaman að sjá á LinkedIn að það eru sífellt fleiri fyrirtæki úti í heimi að taka þátt og ég sá það síðast í gær. Sjálfur skrifa ég greinarnar mínar á ensku til að ná til sem flestra og í sumar var ég til dæmis með fjölsóttan fyrirlestur fyrir vinnustað í Suður Afríku. Þetta er því erindi sem á til atvinnulífsins alls staðar.“ Héðinn segir að fyrirlestrarnir sem Handson fyrirtækið hans standi fyrir fari þannig fram að fyrst tali gesturinn í um hálftíma og síðan taka við umræður sem hann stýrir. „Og þá opnast bara fyrir skemmtilegt spjall á milli gestsins og þeirra sem sækja viðburðinn.“ Viðburðirnir fara fram á ensku, eru á netinu og eru ókeypis. Hægt er að skoða dagskrá vikunnar og tengjast viðburðum HÉR.
Vinnustaðamenning Vinnustaðurinn Góðu ráðin Stjórnun Tengdar fréttir „Þá segir Jói: Veistu, þetta er mesta snilld sem ég hef heyrt!“ „Ég man þegar að við tókum við rekstri Rush Trampólín garðsins að þá var eitt það fyrsta sem starfsfólkið spurði okkur „Þýðir það þá að við fáum Pétur Jóhann til okkar líka?““ segir Jóhannes Ásbjörnsson einn eigenda Gleðipinna um hversu vel starf Péturs Jóhanns Sigfússonar í hlutverki Móralska er að mælast hjá starfsfólki. 16. september 2022 07:01 Við getum öll lært að blómstra betur í vinnunni Þekkir þú styrkleikana þína nægilega vel eða hugarfar til að tryggja þér sem bestum árangri í starfi? 6. apríl 2022 08:32 Ný rannsókn: Ekki launahækkun sem skiptir starfsfólk mestu máli heldur ánægjan Um allan heim fer sú vitundavakning vaxandi að það sem skipti fólk mestu máli í starfi sé ánægjan og því hvernig fólki líður. Já, að fólk upplifi hamingjuna í vinnunni. 27. janúar 2023 07:01 Starfsánægja: Vandinn vex þegar „hveitibrauðsdögunum“ er lokið Flestir starfsmenn eru ánægðir í starfinu sínu og það á þá helst við um smærri fyrirtæki. Sambandið við yfirmanninn skiptir mestu máli þegar spurt er um starfsánægju og margir vinnustaðir eiga erfitt með að halda starfsfólki ánægðu eftir að nýjabrumið í nýju starfi er farið. 23. september 2022 07:00 Stjörnustarfsmaðurinn: Vinnustaðurinn þarf að samræmast þörfum hans og gildum Nýleg samantekt McKinsey gefur til kynna að fyrirtæki séu ekki að ná þeim árangri sem þau telja varðandi aukna vellíðan starfsfólks á vinnustað. 30. ágúst 2023 07:01 Mest lesið „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Betra en ekki að viðurkenna mistökin Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Hafa þróað kerfi til að auka á gagnsæi viðskipta með kolefniseiningar „Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Óöryggi, feimni og jafnvel einmanaleiki í nýju sumarvinnunni Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Níu manns sagt upp hjá Veitum Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Að sækja um starf eftir uppsögn Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur Að standa upp til að gera eitthvað og muna síðan ekkert hvað það var „Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“ Ekkert einkamál: Áhrif vinnustaða á geðheilsu jafn stór og makans „Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“ „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Sjá meira
„Þá segir Jói: Veistu, þetta er mesta snilld sem ég hef heyrt!“ „Ég man þegar að við tókum við rekstri Rush Trampólín garðsins að þá var eitt það fyrsta sem starfsfólkið spurði okkur „Þýðir það þá að við fáum Pétur Jóhann til okkar líka?““ segir Jóhannes Ásbjörnsson einn eigenda Gleðipinna um hversu vel starf Péturs Jóhanns Sigfússonar í hlutverki Móralska er að mælast hjá starfsfólki. 16. september 2022 07:01
Við getum öll lært að blómstra betur í vinnunni Þekkir þú styrkleikana þína nægilega vel eða hugarfar til að tryggja þér sem bestum árangri í starfi? 6. apríl 2022 08:32
Ný rannsókn: Ekki launahækkun sem skiptir starfsfólk mestu máli heldur ánægjan Um allan heim fer sú vitundavakning vaxandi að það sem skipti fólk mestu máli í starfi sé ánægjan og því hvernig fólki líður. Já, að fólk upplifi hamingjuna í vinnunni. 27. janúar 2023 07:01
Starfsánægja: Vandinn vex þegar „hveitibrauðsdögunum“ er lokið Flestir starfsmenn eru ánægðir í starfinu sínu og það á þá helst við um smærri fyrirtæki. Sambandið við yfirmanninn skiptir mestu máli þegar spurt er um starfsánægju og margir vinnustaðir eiga erfitt með að halda starfsfólki ánægðu eftir að nýjabrumið í nýju starfi er farið. 23. september 2022 07:00
Stjörnustarfsmaðurinn: Vinnustaðurinn þarf að samræmast þörfum hans og gildum Nýleg samantekt McKinsey gefur til kynna að fyrirtæki séu ekki að ná þeim árangri sem þau telja varðandi aukna vellíðan starfsfólks á vinnustað. 30. ágúst 2023 07:01