Manchester United fór auðveldlega í gegnum Palace

Anthony Martial skoraði þriðja mark United.
Anthony Martial skoraði þriðja mark United. Sellers/Sportsphoto/Allstar via Getty Images

Manchester United vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Crystal Palace í 32-liða úrslitum enska deildarbikarsins í knattspyrnu í kvöld.

Það var Alejandro Garnacho sem kom heimamönnum yfir á 21. mínútu áður en Casemiro tvöfaldaði forystu liðsins eftir stoðsendingu frá Mason Mount.

Anthony Martial skoraði svo þriðja mark liðsins á 55. mínútu og þar með voru úrslitin ráðin. United er þar með á leið í 16-liðar úrslit enska deildarbikarsins, en liðsmenn Crystal Palace sitja eftir með sárt ennið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira