
„Viðskiptavinir Iceweargarn.is geta nú hannað sína eigin litasamsetningu og séð strax hvernig flíkin lítur út, skipt út litum og prófað sig áfram. Heimsóknum inn á síðuna fjölgaði um 900% þegar við kynntum þessa nýjung. Ég veit ekki til þess að þessi möguleiki sé nokkurs staðar í boði, venjulega þegar pantað er band í vefverslun sér viðskiptavinurinn bara eina dokku í einu. En á nýju iceweargarn síðunni er hægt að sjá alla liti raðast saman í flíkina.
Hér má prófa að skipta um liti í fallegum tvíbanda vettlingum úr slitsterka og hlýja Artic garninu frá Icewear. Uppskriftin að vettlingunum er ókeypis.
Þetta hefur mikið að segja fyrir fólk sem kemst ekki í verslunina til að skoða litina og velja,“ segir Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir, prjónahönnuður og verkefnastjóri yfir handprjónadeild Icewear.
Skemmtilegur gjafaleikur í gangi
Á Instagram Iceweargarn er nú í gangi skemmtilegur gjafaleikur þar sem áhugasamir handprjónarar geta hannað eigin litasamsetningu á hlýja peysu fyrir veturinn. Dregið verður út þann 2. október og er garn í heila peysu að eigin vali í verðlaun.
Íslendingar duglegir að prjóna
Guðrún segir prjónasamfélagið á Íslandi fjölmennt og Íslendingar eigi til dæmis heimsmet miðað við höfðatölu inni á prjónasíðunni Ravelry.

„Handprjón er mjög vinsælt áhugamál, vinsælla hér en í öðrum löndum. Mögulega vegna þess að hér hefur alltaf verið mikil þörf fyrir hlýjar prjónaflíkur,“ segir Guðrún. „Markmiðið er að birta nýja uppskrift í hverri viku á nýju heimasíðunni, bæði nýjar og einnig ætlum við að sækja í grunninn okkar og endurvekja uppskriftir að flíkum sem voru til sölu á áttunda áratugnum.
Við erum einnig í samstarfi við íslenska prjónahönnuði sem geta fengið uppskrift birta á síðunni hjá okkur. Það verkefni fer virkilega vel af stað og við vonumst til þess að þetta verði lyftistöng fyrir íslenska prjónaheiminn,“ segir Guðrún.

Í hóp stærri framleiðenda á Norðurlöndum
Icewear hefur selt tilbúnar prjónaflíkur allt frá árinu 1972 og bætir nú handprjóninu við. Kveikjan að því var skortur á hráefni fyrir peysur Icewear svo Ágúst Þór Eiríksson, eigandi Icewear ákvað að láta framleiða band sem hentaði.„Hann hugsar ávallt stórt og nú erum við komin í sextán tegundir og tvær til viðbótar eru væntanlegar fyrir jól,“ segir Guðrún.
„Bandið verður líka markaðssett fyrir erlendan markað og er Icewear þar með komið í hóp með stærri garnframleiðendum á Norðurlöndunum. Línan inniheldur allt það vinsælasta, mjúka ull sem hentar fullkomlega í íslenskar lopapeysur, Mohair- silk og bambus og allt er þetta komið inn á síðuna hjá okkur,“ segir Guðrún.
